Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní og styrkir samstarfið enn frekar
Samkaup hefur aukið eignarhlut sinn í Kjötkompaníinu upp í 48%, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Í október sl. sendu félögin út tilkynningu þar sem fram koma að Samkaup hafi keypt 38% hlut í Kjötkompaní og síðan þá hefur samstarfið gengið vel og skapað enn frekari vilja til að fjárfesta í samstarfinu. Markmið Samkaup er að einfalda líf viðskiptavina með fjölbreyttu og aðgengilegu vöruúrvali. Þannig eykur samstarfið sérstöðu Samkaupa enn frekar með því að bjóða gott úrval kjötvara og meðlætis sem Kjötkompaní og Matbúrið hafa að bjóða.
Jón Örn Stefánsson, matreiðslumeistari og eigandi Kjötkompanís fagnar þessu skrefi. „Sérstaka okkar er í kjöti og með þessu sjáum við tækifæri til að dýpka samstarfið enn frekar og vinna náið með vöruflokkastjórum, verslunarstjórum og kjötstarfsmönnum í verslunum. Við sjáum mikil samlegðaráhrif við að þjónusta matarþarfir viðskiptavina.
Samkaup rekur 65 verslanir um land allt undir vörumerkjunum Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin. Stefnt er að því að breikka vöruúrvalið frá Kjötkompaníinu í verslunum en áfram verður lögð áhersla á vörur undir merkjum Matarbúrsins, sem sérhæfir sig í þróun tilbúinna rétta.
„Það er styrkur fyrir okkur að fá Kjötkompaní í enn frekara samstarf. Þekking þeirra og reynsla í kjöti mun gera okkur kleift að þjónusta viðskiptavini enn frekar með gæða úrvali fyrir grillsumarið sem framundan er. Reynslan þeirra er mikil og samstarfið styrkir vegferðina að bæta upplifun og þjónustu í verslunum. Við hlökkum til að kynna vörurnar betur fyrir viðskiptavinum“ Segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Samkaupa.
Samkaup hf. er vaxandi verslunarfyrirtæki á dagvörumarkaði sem rekur yfir 60 verslanir um allt land m.a. undir merkjum Nettó og Prís. Samkaup er dótturfélag Dranga hf. sem er móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði. Systurfélög Samkaupa eru Orkan og Lyfjaval.



