Norrænt samstarf mikilvægara en nokkru sinni fyrr: Kröftugt starf á Suðurnesjum
„Vinátta og traust einkennir norrænt samstarf, hvort sem það er á sviði mennta, menningar eða stjórnmála. Það er eftirsóknarvert að koma á þessum samskiptum, sama við hvað fólk starfar,“ segir Oddný G. Harðardóttir, formaður Norræna félagsins á Suðurnesjum. Hún er kynnt til leiks á síðu Norræna félagsins með fróðlegu viðtali.
Oddný, sem er fyrrverandi alþingismaður, hefur áralanga reynslu af norrænu samstarfi í gegnum Vestnorrænaráðið og Norðurlandaráð. Nú leiðir hún nýsameinað félag á Suðurnesjum sem blæs til sóknar á svæðinu.
Nýtt félag og þétt dagskrá
Norræna félagið á Suðurnesjum varð til þann 20. september 2025 þegar félögin í Suðurnesjabæ, Reykjanesbæ og Vogum sameinuðust í eina öfluga heild. Síðan þá hefur starfið verið fjölbreytt:
-
Leshringur: Félagið starfrækir leshring þar sem bókmenntir Norðurlandanna eru ræddar.
-
Fræðslufundir: Bogi Ágústsson og þingkonurnar Dagbjört Hákonardóttir og Ása Berglind Hjálmarsdóttir hafa haldið fjölsótta fyrirlestra á svæðinu um samskipti þjóða og norræna samvinnu á óvissutímum.
-
Samstarf við sveitarfélög: Stjórnin hefur átt fundi með bæjarstjórum á svæðinu til að styrkja tengslin og ræða vinabæjarsamstarf.
„Lærum hvert af öðru“
Að mati Oddnýjar eru óformleg og formleg samskipti lykilatriði í því að efla nýsköpun, bæta skólastarf og efla þjónustu sveitarfélaga.
„Ég held að norrænt samstarf hafi aldrei verið mikilvægara. Stoðirnar sem það stendur á eru samskipti, skilningur og vinátta á milli fólksins sem býr á Norðurlöndum,“ segir Oddný.
Kim Leine, bjór og vísnasöngur
Framundan er spennandi dagskrá hjá félaginu:
-
16. apríl: Leshringur í Hljómahöll þar sem bókin Kalak eftir Kim Leine verður tekin fyrir.
-
September: Vetrarstarfið kynnt í Vogunum með norrænum bjór, snakki og söng.
Fyrir þá sem vilja auka „norræna braginn“ í hversdeginum mælir Oddný með því að nýta tæknina til að hlusta á norræn tungumál, til dæmis á Storytel. Sjálf heldur hún mikið upp á vísnasöngvarann Cornelis Vreeswijk og daninn Kim Larsen er í miklu uppáhaldi þegar lyfta þarf lundinni.
Áhugasamir geta fylgst með starfinu og skráð sig í félagið á norden.is eða á Facebook-síðunni: Norræna félagið á Suðurnesjum.



