KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Framboðslisti D-listans í Vogum samþykktur
Fimmtudagur 2. apríl 2026 kl. 11:20

Framboðslisti D-listans í Vogum samþykktur

Framboðslisti D-listans – Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum, fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í Vogum í gærkvöld.

Oddviti listans og bæjarstjóraefni er Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur með víðtæka reynslu úr atvinnulífi. Í 2. sæti er Guðmann Rúnar Lúðvíksson, varabæjarfulltrúi og starfsmaður hjá Landhelgisgæslunni. Í 3. sæti er Hulda Blöndal, deildarstjóri hjá Klettabæ, og í 4. sæti Kristín Arna Hjaltadóttir, leikskólakennari.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

„Ég er bæði þakklát og auðmjúk gagnvart því verkefni sem framundan er. Hér erum við með sterkt teymi sem mun eingöngu styrkjast eftir því sem tímanum vindur fram. Við erum samhentur hópur sem er tilbúinn að taka ábyrgð, leggja sitt af mörkum og vinna fyrir samfélagið okkar,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti D-listans.

Frambjóðendur D-listans - Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum eru:

  1. Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur

  2. Guðmann Rúnar Lúðvíksson, sérfræðingur á varnarmálasviði

  3. Hulda Blöndal, deildarstjóri 

  4. Kristín Arna Hjaltadóttir, leikskólakennari

  5. Andri Rúnar Sigurðsson, framleiðslu- og stöðvarstjóri

  6. Magnús G. Jónsson Núpan, nemi í landslagsarkitektúr og flugþjónn

  7. Þórunn Sigurðardóttir, heilbrigðisgagnafræðingur

  8. Hólmgrímur Rósenbergsson, lífeyrisþegi

  9. Súsanna Tómasdóttir, starfsmaður í búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun

  10. Róbert Andri Drzymkowski, rafvirki og starfsmaður félagsmiðstöðvar

  11. Sigurður Rafn Vignisson, lagerstarfsmaður

  12. Árni G. Torfason, rafvirki

  13. Steinar Smári Guðbergsson, meindýraeyðir

  14. Björn Sæbjörnsson, formaður bæjarráðs og bæjarfulltrúi