Seiglusigur hjá Keflavík á Hlíðarenda
Keflvíkingar náðu sér í heimavallarétt með sigri á Valsmönnum á Hlíðarenda í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í æsispennandi leik 75-78, risasigur fyrir Keflavík sem leiðir 0-1 í einvíginu.
Keflvíkingar byrjuðu illa og skoruðu aðeins 14 stig í fyrsta leikhluta og voru sjö stigum undir 21-14. Þeir réttu aðeins úr kútnum í öðrum leikhluta, vel studdir af sínu fólki á áhorfendapöllunum þrátt fyrir baslið en heimamenn í Val bættu samt í forystuna og leiddu með tíu stigum í hálfleik, 42-32.
Eftir slakan fyrri hálfleik þar sem sóknarleikurinn var mjög dapur og léleg skotnýting, kom bítlabæjarliðið inn í seinni hálfleik með miklum krafti og unnu þriðja leikhlutann með sjö stigum. Keflvíkingar léku mjög sterka vörn og það gerði sóknarleik Vals erfiðan ásamt því að vera miklu betri í sókn þar sem illa gekk í fyrri hálfleik.
Í lokaleikhlutanum náðu Keflvíkingar að jafna í fyrsta sinn og komast yfir en baráttunni var hvergi lokið því Valsmenn með Antonio K. Woods sem var sjóðheitur, voru ekki á því að gefast upp gegn miklu frískari Keflvíkingum. Úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum þar sem gestirnir úr Keflavík voru betri og tryggðu sér mikilvægan sigur.
Mirza Bulic var bestur Keflvíkinga og framlag hans í fyrri hálfleik hélt Keflavík inni í leiknum en hann skoraði meira en helming stiga liðsins þegar sóknarleikurinn gekk illa. Liðsfélagar hans komu hins vegar sterkari inn í síðari hálfleik, og leikmenn sýndu miklu betri leik. Það var við hæfi að Mirza innsiglaði sigurinn þegar Woods fékk dæmda á sig ásetningsvillu á síðustu sekúndunum fyrir brot á Mirza sem skoraði úr öðru úr tveimur vítum og síðan náðu Keflvíkingar að halda boltanum þangað til leiktíminn rann út.
Remy Martin kom inn í leikmannahóp Keflavíkur aftur eftir meiðsli. Hann lék í 36 mínútur, var slakur og ólíkur sér í fyrri hálfleik en Daníel Guðni þjálfari Keflavíkur hélt honum mikið inná og sagði í viðtali eftir leik hafa viljandi gert það til að koma honum í gang. Það gerðist og Remy endaði á því að skora 12 stig og gaf fjórar stoðsendingar. Það munaði virkilega um hans framlag í síðari hálfleik þó svo hann eigi hafi enn ekki sýnt sama og hann gerði fyrir tveimur árum. Það verður áhugavert að sjá hann í næstu leikjum. Fleiri leikmenn Keflavíkur eiga hrós skilið fyrir baráttuna í síðari hálfleik og ná sigri í fyrsta leik en Keflvíkingar virðast kunna ágætlega við sig á Hlíðarenda.
Næsti leikur verður í Keflavík á þriðjudaginn.
Valur-Keflavík 75-78 (21-14, 21-18, 19-25, 14-21)
Valur: Antonio Keyshawn Woods 26/7 fráköst, Kári Jónsson 13/4 fráköst/7 stoðsendingar, Frank Aron Booker 12/4 fráköst, Lazar Nikolic 10/8 fráköst, Callum Reese Lawson 6/8 fráköst, Igor Maric 5, Hjálmar Stefánsson 3, Karl Kristján Sigurðarson 0, Orri Már Svavarsson 0, Veigar Örn Svavarsson 0, Kristófer Acox 0/7 fráköst, Ástþór Atli Svalason 0.
Keflavík: Mirza Bulic 25/6 fráköst, Egor Koulechov 15/8 fráköst, Remy Martin 12, Hilmar Pétursson 11, Craig Edward Moller 8/8 fráköst/3 varin skot, Jaka Brodnik 4, Halldór Garðar Hermannsson 3, Ólafur Björn Gunnlaugsson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Nikola Orelj 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Birgir Örn Hjörvarsson
Áhorfendur: 737
Viðureign: 0-1



