Öruggt hjá Njarðvík á Króknum - staðan 2:0
Njarðvíkurkonur sýndu Stólunum enga miskunn og mættu með miklum látum á Krókinn í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfu. Njarðvík vann þrjátíu stiga sigur 58-88 og hefur sigrað í fyrstu tveimur leikjunum og getur tryggt sig í undanúrslit með næsta sigri í Njarðvík.
Njarðvíkingar tóku strax forystu í leiknum og leiddu með þrettán stigum eftir fyrsta leikhluta. Þær bættu við sjö stigum í forskotið sem var þá orðið tuttugu stig þegar flautað var til leikhlés, 22-42.
Heimakonur réttu aðeins sinn hlut í þriðja leikhluta og unnu hann með stigi en gestirnir úr Njarðvík unnu lokaleikhlutann 16-27 og gulltryggðu stórsigur.
Danielle Rodriguez leiddi lið Njarðvíkur og skoraði 23 stig og tók tíu fráköst. Brittany Dinkins var atkvæðaminni en oft áður í stigaskori, gerði þó 16 stig en bætti það upp með átta stoðsendingum. Þriðja stigahæst var Hulda María Agnarsdóttir sem skoraði 15 stig og tók fjögur fráköst.
Hjá Tindastóli skoraði Marta Hermida 27 stig en það er ljóst að það bíður Stólunum erfitt verkefni að koma í Icemar höllina í þriðja leik.
Tindastóll-Njarðvík 58-88 (10-23, 12-19, 20-19, 16-27)
Tindastóll: Marta Hermida 27, Madison Anne Sutton 10/13 fráköst/5 stoðsendingar, Brynja Líf Júlíusdóttir 7, Oceane Kounkou 6, Rannveig Guðmundsdóttir 6/7 fráköst, Inga Sólveig Sigurðardóttir 1/5 fráköst, Eva Run Dagsdottir 1, Emma Katrín Helgadóttir 0, Emilía Ragnheiður Barðdal Róbertsdóttir 0, Roselis Silva 0/4 fráköst.
Njarðvík: Danielle Victoria Rodriguez 23/10 fráköst, Brittany Dinkins 16/4 fráköst/8 stoðsendingar, Hulda María Agnarsdóttir 15/4 fráköst, Sofia Roma 9/9 fráköst, Helena Rafnsdóttir 8, Inga Lea Ingadóttir 4, Kristín Björk Guðjónsdóttir 3, Sara Björk Logadóttir 3, Aníta Rut Helgadóttir 3, Krista Gló Magnúsdóttir 2, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 2, Helga Jara Bjarnadóttir 0.
Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Eggert Þór Aðalsteinsson, Guðmundur Ragnar Björnsson
Áhorfendur: 202
Viðureign: 0-2





