Sjálfbær uppbygging og þjónusta í þágu samfélagsins
Reykjanesbær er mitt samfélag. Hér ólst ég upp, stundaði körfubolta af kappi og hef í gegnum tíðina starfað við fjölbreytt störf eins og tollgæslu, sjálfbærnimál, í banka og verslun, sem framkvæmdastjóri, kennari og innan velferðarþjónustu. Ég hef kynnst fólki úr ólíkum áttum með ólíkan bakgrunn og hef séð hversu mikill styrkur felst í fjölbreytileikanum okkar.
Kennari
Sem kennari hef ég séð hversu mikilvægt það er að hvert barn fái að njóta sín á eigin forsendum. Það snýst ekki um að allir séu eins, heldur að allir fái jöfn tækifæri til að vaxa og dafna. Þar skiptir miklu máli að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda og skapa umhverfi þar sem allir tilheyra.
Velferðarmál
Í starfi mínu innan velferðarsviðs Reykjanesbæjar sá ég skýrt hversu mikilvægt það er að kerfin okkar séu aðgengileg, réttlát og mannleg. Það er grundvallaratriði að þörfum og velferð bæjarbúa sé sinnt með markvissum hætti. Í því samhengi skiptir miklu máli að ferlar innan kerfisins séu skýrir, samræmdir og faglega unnir. Vel skilgreindir verkferlar tryggja ekki aðeins skilvirkni heldur einnig jafnræði, gagnsæi og öryggi í þjónustu
Sjálfbærni
Sjálfbærni er ekki aðeins umhverfismál heldur snýst hún um hvernig við byggjum upp samfélag sem stendur sterkt til lengri tíma fyrir fólk, atvinnulíf og náttúru. Það felur í sér að hugsa til framtíðar, nýta auðlindir af ábyrgð og skapa lausnir sem styðja við bæði efnahagslegan og félagslegan stöðugleika.
Byggjum á styrkleikum okkar
Ég hef fjölbreytta menntun, með BA-próf í heimspeki og viðskiptafræði, kennsluréttindi í grunn- og framhaldsskólum, diplómu í geðheilbrigði barna, markþjálfun og MA í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun. Ég vil að við nýtum þann kraft sem býr í Reykjanesbæ bæði í fólkinu og atvinnulífinu til að skapa tækifæri, efla nýsköpun og styrkja samfélagið.
Af hverju Viðreisn?
Gildi mín falla vel að því sem Viðreisn stendur fyrir: velferð, sterkt atvinnulíf, jafnrétti og almannahagsmuni umfram sérhagsmuni. Ég vil hlusta á raddir íbúa og vinna með fólki að lausnum sem skipta máli í daglegu lífi.
Ég trúi því að með markvissum aðgerðum og skýrri sýn getum við mótað samfélag þar sem sjálfbærni er leiðarljós í allri uppbyggingu og þjónustu.
Ásta Kristín Guðmundsdóttir
Kennari, verkefnastjóri og markþjálfi
Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjanesbæ



