Íbúðir fyrir eldri borgara lausar til umsóknar í Víðihlíð
Grindavíkurbær hefur auglýst tólf leiguíbúðir lausar til umsóknar að Austurvegi 5 í Grindavík. Um er að ræða átta stærri íbúðir og fjórar minni sem ætlaðar eru eldri borgurum.
Leiguverð er hagstætt en áætlað er að leiga fyrir stærri íbúðirnar sé um 170.000 krónur á mánuði og um 126.000 krónur fyrir þær minni. Innifalið í leigunni er bæði hiti og rafmagn, auk aðgangs að geymslu, sameign og sameiginlegu þvottahúsi. Bent er á að umsækjendur geta átt rétt á húsnæðisbótum í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Til þess að koma til greina sem leigjandi þurfa umsækjendur að hafa náð 72 ára aldri og uppfylla ákveðnar kröfur um líkamlega færni samkvæmt sérstöku mati.
Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar þann 1. maí næstkomandi. Áhugasamir þurfa að skila inn umsóknum í gegnum íbúagátt Grindavíkurbæjar undir flokknum „Málefni eldri borgara“, segir á vef bæjarins.





