Aukið viðbragð í Grindavík
Óvissa um eldgos með áframhaldandi landrisi og jarðhræringar halda áfram á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi. Viðbragðsaðilar verða með aukið viðbragð meðan óvissa með veður er til staðar. Vakt slökkviliðs verður aukin ásamt því að björgunarsveit verður til staðar í bænum, segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum þar sem hann varar jafnframt við veðurspá dagsins og samgöngugtruflunum vegna óveðursins.
„Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt til að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara. Því getur verið varasamt að vera á ferðinni meðan veður gengur yfir,“ segir í tilkynningu lögreglustjóra.
Lögreglan hvetur vegfarendur til að fylgjast náið með veður- og færð á vef Vegagerðarinnar umferdin.is og á vef Veðurstofu Íslands vedur.is áður en lagt er af stað og gefa sér ríflegan tíma í ferðalög. Eins eru farþegar á leið til Keflavíkurflugvallar beðnir um að fylgjast með flugáætlun flugfélaganna á vefsíðu þeirra og heimasíðu Isavia.



