Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Aðsent

Framlög til íþróttamála, tölum af sanngirni
Þriðjudagur 7. apríl 2026 kl. 09:52

Framlög til íþróttamála, tölum af sanngirni

Nýlega birtist grein í Víkurfréttum þar sem því var haldið fram að aukin framlög til íþróttamála í Reykjanesbæ væru einungis sýnileg í bókahaldi sveitarfélagsins en kæmu ekki fram í raunverulegu starfi íþróttafélaganna. Það er mikilvægt að þessi umræða fari fram en jafn mikilvægt er að hún sé byggð á staðreyndum.

Í fyrsta lagi er uppbygging íþróttamannvirkja ekki „aukaatriði“ heldur forsenda öflugs íþróttastarfs. Ný mannvirki eins og íþróttahús og sundlaug við Stapaskóla skapa aukið aðgengi, bæta æfingaaðstöðu og gera fleiri börnum kleift að taka þátt í íþróttum. Slík fjárfesting er eins mikill fjárstuðningur og hugsast getur og fyrir okkur Njarðvíkinga var þetta lífsnauðsynlegt framlag frá sveitarfélaginu okkar.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Í öðru lagi þarf að horfa til heildarmyndarinnar. Aukin þátttaka barna í íþróttum, auknar kröfur um fagmennsku og fjölbreyttari þjónusta kalla á bæði aukið rekstrarfé og bætta aðstöðu. Það er því eðlilegt að fjármunir skiptist á milli uppbyggingar innviða og stuðnings við daglegt íþrótta- og tómstundastarf. Að stilla þessu upp sem andstæðum þáttum þjónar ekki málefnalegri umræðu.

Í þriðja lagi ber að viðurkenna að uppbygging tekur tíma. Fjárfestingar í mannvirkjum skila sér ekki alltaf strax í rekstri félaga, en til lengri tíma skapa þær betri rekstrarskilyrði, meiri nýtingu og aukin tækifæri til tekjuöflunar og þróunar. Það er ekki rétt að halda því fram að aukin framlög skili sér ekki. Þau birtast einfaldlega á fleiri en einn hátt, bæði í ytri aðstöðu og innra starfi. Verkefnið fram undan er ekki að gera lítið úr þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað, heldur að tryggja að næstu skref byggi ofan á þá miklu innspýtingu sem hefur verið sett í málaflokkinn.

Reykjanesbær fór í mikilvæga og metnaðarfulla vinnu 2023 við endurskoðun rekstrarsamninga við íþróttafélög. Það skipti miklu máli að stærstu íþróttafélög bæjarins áttu fulltrúa í þeirri vinnu. Skýrsla starfshópsins byggir því á sameiginlegri sýn og raunverulegum þörfum hreyfingarinnar sjálfrar. Skýrslan dregur enn fremur fram skýrar tillögur um hvernig bæta megi rekstrargrundvöll íþróttafélaganna og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að Reykjanesbær hefur unnið markvisst að því að hrinda þessum tillögum í framkvæmd. Nú þegar er búið að uppfylla mörg þeirra atriða sem lögð voru fram í skýrslunni, sem sýnir að þetta var ekki einungis stefnumótandi skjal heldur einnig raunveruleg aðgerðaáætlun sem hefur þegar skilað miklum árangri fyrir íþróttastarf í bænum, í það minnsta finnur undirritaður vel fyrir þessum stuðningi.

Ungmennafélögin okkar í Reykjanesbæ hafa til að mynda verið styrkt með fjórum stöðugildum, íþróttastjórum og fjármálastjórum, stöðugildum sem eru fjármögnuð af Reykjanesbæ. Knattspyrnudeildir Keflavíkur og Njarðvíkur hafa fengið mikilvægan rekstrarsamning um rekstur knattspyrnuhallar og fimleikadeild Keflavíkur hefur á síðustu árum fengið sérstaka samninga um eflingu barna- og ungmennastarfs, samþykktan rekstur Fimleikaakademíu og fengið aukinn stuðning til kaupa og endurnýjunar á búnaði. Einnig hefur fimleikadeildin, í ljósi mikils fjölda iðkenda, fengið aðstöðu í Akurskóla og í Keili auk aðstöðunnar í Fimleikaakademíunni.

Þá hefur sveitarfélagið almennt veitt íþrótta- og tómstundafélögum verulegan fjárhagslegan stuðning, bæði í formi beinna framlaga, hækkun hvatagreiðslna (nú frístundastyrkir), hækkun þjálfarastyrkja, styrk til Íþróttabandalags Reykjanesbæjar í formi hálfs stöðugildis framkvæmdastjóra ásamt fjölmörgum þjónustu- og rekstrarsamningum við íþrótta- og tómstundafélög í Reykjanesbæ. Þegar horft er til þessarar heildarmyndar er erfitt að halda því fram að aukin framlög séu aðeins til staðar á blaði en komi ekki fram í raunverulegu starfi.

Tölum af sanngirni um það sem vel er gert og byggjum áfram ofan á það!

Hámundur Örn Helgason
framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Njarðvíkur