Er ekki kominn tími til að gera eitthvað frábært eftir þessa „blessuðu” sameiningu?
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga
Þriðja kjörtímabilið eftir sameiningu, Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar, er að hefjast og enn heyrast raddir um að lítillar hagræðingar hafi gætt og að lítið sé búið að gerast frá sameiningunni. Sitt sýnist hverjum hvað þetta varðar en þó er ljóst að margir íbúanna úr kjörnunum tveimur eru enn að takast á, amk um gervigrasvöllinn og á hvorum göngu- og hjólastígnum yfir til Reykjanesbæjar á að byrja, frá Sandgerði eða Garði. Við erum að tala um átta ár, ýmislegt hefur gengið á og umræðan ekki alltaf uppbyggileg. Öllum ætti þó að vera ljóst að ekki er hægt að gera allt á öllum stöðum en það verður að vera hægt að taka skref framávið, sýna hugrekki og ganga í verkin - og stundum stór.
S-listinn í Suðurnesjabæ er skipaður fjölbreyttum hópi fólks sem vill gera Suðurnesjabæ að enn öflugra sveitarfélagi en það er í dag, nýta tækifærin sem til staðar eru og umfram allt að skapa ný. Við spyrjum því - er ekki kominn tími til að gera eitthvað frábært eftir sameiningu?
Við í S-listanum erum tilbúin í að koma þessum hlutum í verk auk fleiri verkefna sem öll snúa að því að gera sveitarfélagið okkar samkeppnishæfara þannig að hér byggist upp betri þjónusta og atvinnutækifæri. Þá spyrja eflaust einhverjir: Er þetta ekki allt sama fólkið og er búið að vera við völd síðustu ár? Því er auðsvarað. Jú að hluta til en við erum einnig komin með nýtt fólk í efstu sæti og trúum því að eðlilegt sé að hleypa fleirum að borðinu - og þannig virkar lýðræðið.
Listinn okkar er skipaður fólki með víðtæka reynslu og þekkingu, m.a. úr sveitarstjórnarmálum, stjórnsýslunni, atvinnulífinu og skólaumhverfinu.
Við á S-listanum erum sammála um að það er margt gott að finna í Suðurnesjabæ og margt gott hefur verið gert - en við viljum meira. Við viljum horfa framávið, nýta kraftinn sem býr í okkur sjálfum og náttúrunni sem umlykur okkur.
Við óskum því eftir samtali og samvinnu við íbúa og hefjum kosningabaráttuna okkar á tveimur málefnafundum sem fara fram 7. og 14. apríl. Báðir fundirnir fara fram í Golfskálanum hjá Golfklúbbi Sandgerðis, rétt á milli byggðakjarnanna og hefjast kl. 20.00.
Allir íbúar og aðrir áhugasamir um öflugra og sameinað samfélag í Suðurnesjabæ eru velkomnir.
Fyrir hönd frambjóðenda S-listans í Suðurnesjabæ, lista Samfylkingar og óháðra,
Svavar Grétarsson, Bergný Jóna Sævarsdóttir, Egill Rúnar Sigurðsson, Önundur S. Björnsson, Thelma Dís Eggertsdóttir og Bára Kristín Þórisdóttir.



