KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi kl. 14
Svona er umhorfs úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Strandarheiði nú í hádeginu.
Mánudagur 6. apríl 2026 kl. 12:31

Appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi kl. 14

Appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi á Suðurnesjum kl. 14 í dag og gilda til kl. 22 í kvöld. Austan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð, en fer að rigna seinnipartinn, fyrst sunnantil. Ekkert ferðaveður. Einnig eru líkur á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum, segir í tilkynningu með viðvöruninni.

Á Reykjanesvita voru komnir austan 28 m/s á hádegi með hviðu upp á 37 m/s. Hitastigið var tvær gráður. Á sama tíma voru austan 19 m/s á Garðskagavita með hviðu upp á 27 m/s. Á Reykjanesbraut var norðaustan 17 m/s. Austan 17 m/s og lítilsháttar slydda var á Keflavíkurflugvelli kl. 12 á hádegi. Á sama tíma voru austan 25 m/s í Fagradalsfjalli og austan 18 m/s í Grindavík.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Opið er fyrir umferð um Reykjanesbraut eins og er en henni var lokað um tíma í morgun.

Myndavél Vegagerðarinnar í Reykjanesvita sem horfir í átt til Eldeyjar er með þetta útsýni.
Rósaselstorg nú í hádeginu.