Nýr krókheysisbíll Brunavarna Suðurnesja þegar kominn í gagnið
Brunavarnir Suðurnesja tóku á dögunum á móti nýjum og öflugum krókheysisbíl sem þurfti ekki að bíða lengi eftir sínu fyrsta verkefni. Bíllinn fór í sitt fyrsta formlega útkall í gær þegar óskað var eftir aðstoð við sjúkraflutninga í Sandvík.
Í útkallinu sýndi bíllinn strax fjölhæfni sína en hann var nýttur til að ferja buggy-bíl slökkviliðsins á vettvang. Vegna erfiðra aðstæðna var buggy-bíllinn nauðsynlegur til að komast alla leið að sjúklingnum. Eftir að hlúð hafði verið að viðkomandi var hann fluttur til frekari skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS).
Þessi nýi bíll er mikilvæg viðbót við tækjakost liðsins, en honum fylgir einnig 10.000 lítra vatnstankur sem jafnan er geymdur á bílnum til að tryggja skjót viðbrögð við hvers kyns slökkvistarfi. Samkvæmt ársskýrslu Brunavarna Suðurnesja fyrir árið 2025 er þessi krókheysisbifreið hluti af markvissri endurnýjun á tækjakosti, en hún leysir tvær eldri bifreiðar af hólmi




