Framtíð Suðurnesjabæjar byggist á samstöðu, skýrri sýn og traustum grunni
Tækifæri til framtíðar
Suðurnesjabær stendur á tímamótum þar sem fjölbreytt og spennandi tækifæri blasa við. Á slíkum tímum er mikilvægt að horfa fram á veginn með skýra sýn, byggja á styrkleikum samfélagsins og vinna saman að markvissri uppbyggingu til framtíðar.
Öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf
Íþróttalíf bæjarins hefur vaxið og dafnað á undanförnu, má þar helst nefna að yngriflokkarnir í fótbolta hafa náð frábærum árangri og allir skila bikurum í sínum getuflokki, nýlega stofnuð júdódeild hefur vakið mikla athygli fyrir sterka byrjun og strax farin að skila verðlaunum hjá sínum iðkendum. Körfuboltinn var að ná upp um deild og handboltinn sýnt jákvæða þróun með aukinni þátttöku. Pílan að gera vart við sig, golfið á sínum stað og undirbúningur fyrir rafíþróttardeild í býgerð. Þetta endurspeglar sterkan grunn í æskulýðsstarfi sem mikilvægt er að hlúa áfram að. Það ber að þakka öllum sem að þessu starfi standa fyrir hugsjónina og eljuna við að hlúa að starfsemi barnanna okkar.
Uppbygging og atvinnuþróun
Framundan eru metnaðarfull verkefni sem styrkja stoðir samfélagsins til framtíðar. Þar má helst nefna Grænu Iðngarðana og alla þá uppbyggingu sem er á skipulagi við Bergvík. Nálægð við alþjóðaflugvöllinn skapar einstaka stöðu þegar kemur að atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og fjölbreyttum tækifærum.
Auðlindir og frumkvæði heimamanna
Svæðið býr yfir verðmætum auðlindum og fjölbreyttum möguleikum. Þar má nefna heitt vatn í Rockville og kalt vatn í Árnarétti. Framtakssemi heimamanna er einnig eftirtektarverð, til að mynda er nýr Gusumeistara í Stórahólmi, Þaraböðin á Garðskaga, eldri borgarar búnir að stofna nýtt félag um félagsstarf sitt svo fátt eitt sé nefnt. Aukin nýting á höfninni og sterkar fiskvinnslur í bæjarfélaginu. Þetta sýnir þann kraft og vilja sem býr í samfélaginu og það er undir okkur komið að ýta ennfrekar undir tækifærin til verðmætasköpunar.
Mannauðurinn – sterkasti grunnurinn
Kjarninn í allri þessari þróun er fólkið sjálft. Suðurnesjabær hefur á að skipa öflugum mannauði, ekki síst innan leik- og grunnskóla þar sem grunnur að framtíðinni er lagður. Með því að efla samvinnu og nýta styrkleika hvers og eins getum við skapað enn betra samfélag fyrir alla íbúa.
Fagleg vinnubrögð og sameiginleg ábyrgð
Til að ná raunverulegum árangri er mikilvægt að við byggjum ákvarðanatöku á faglegum vinnubrögðum, gagnsæi og virku samtali við íbúa. Jafnræði þarf að vera leiðarljós í allri meðferð mála, þannig að sjónarmið og hagsmunir allra fái notið sín. Með því að sýna gagnkvæma virðingu og tillitsemi í samskiptum skapast traustur grundvöllur fyrir vandaðar og farsælar lausnir.
Með slíkri nálgun eigum við að geta náð sátt og samstöðu um þau verkefni sem framundan eru og sameinast um að gera samfélagið okkar í Suðurnesjabæ enn betra.
Fyrirmyndir fyrir komandi kynslóðir
Það er á ábyrgð okkar allra að vera fyrirmyndir fyrir börnin okkar. Með því að sýna samstöðu, virðingu og umburðarlyndi í samskiptum leggjum við grunn að heilbrigðu og jákvæðu samfélagi. Við sem samfélag þurfum að leggjast öll á eitt, vinna saman og leita sameiginlegra leiða til úrlausnar þeirra verkefna sem fyrir okkur standa – með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi.
Samstaða og sameiginleg markmið
Framtíðarsýn okkar byggist á því að vinna saman, hlusta hvert á annað og leggja áherslu á það sem sameinar okkur. Markmiðið er skýrt: að tryggja velferð barna okkar, efla samfélagið og skapa jöfn tækifæri fyrir alla íbúa.
Virkt samtal og þátttaka íbúa
Til að styrkja þessa sýn viljum við hvetja til virkrar þátttöku íbúa. Því verður sett af stað íbúakönnun þar sem allir geta lagt sitt af mörkum við mótun framtíðar bæjarins. Niðurstöður hennar verða svo kynntar á opnum málefnafundi sem auglýst verður síðar, þar sem áfram verður unnið að mótun málefna framboðsins í samvinnu við ykkur. .
Suðurnesjabær – saman mótum við framtíðina
Komið með okkur í þessa vegferð, nýtum þau tækifæri sem framundan eru og byggjum samfélag sem einkennist af samstöðu, virðingu og framsýni.
Haukur Andreasson, lögfræðingur
Oddviti D-listans og óháðra




