Metþátttaka á páskabingói Þróttar í Vogum
Metþátttaka var á hinu árlega páskabingói Ungmennafélagsins Þróttar sem fram fór í Tjarnarsal í Vogum í gær. Talið er að um 450 gestir hafi mætt og var stemningin í salnum einstaklega lífleg og góð.
Páskabingóið á sér langa sögu í Vogum og hefur verið fastur liður í páskahaldi sveitarfélagsins í yfir 50 ár. Viðburðurinn hefur notið sívaxandi vinsælda í gegnum tíðina og laðar að sér bæði heimafólk og gesti úr nærliggjandi sveitarfélögum.
Að sögn forsvarsmanna Þróttar er ánægja með þátttökuna mikil og ljóst að stuðningur bæjarbúa skiptir félagið miklu máli.
„Við erum virkilega ánægð með þátttökuna og þann stuðning sem félagið nýtur. Við færum bæjarbúum og öðrum gestum miklar þakkir fyrir stuðninginn,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Páskabingó Þróttar heldur þannig áfram að vera einn af hápunktum páskahátíðar í Vogum og virðist ekkert lát á vinsældum þess.



