KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Mannlíf

Skáldasuð lista – og ljóðahátíð í Reykjanesbæ 9.-26. apríl
Sunnudagur 5. apríl 2026 kl. 06:08

Skáldasuð lista – og ljóðahátíð í Reykjanesbæ 9.-26. apríl

Skáldasuð er hugsuð sem ljóða- og listahátíð suður með sjó í marsmánuði þar sem reyndir og nýir listamenn og skáld geta komið saman og átt samtal við áheyrendur en í mars er einnig alþjóðlegur dagur ljóðsins sem er 21. mars og norræni sjónlistadagurinn. Skáldasuð er nú haldin í þriðja sinn og að þessu sinni þurfti að halda hátíðina í apríl, 9.-26. apríl. Hátíðin er um allan bæ, ljóð í leiðinni á göngustígum og í kjörbúðum, ljóð í lauginni í Stapalaug og Vatnaveröld og upplestrar og sýning í Duushúsum. Hátíðin er hugarfóstur listamannsins og skáldsins Gunnhildar Þórðardóttur en hún hefur starfað sem virkur myndlistarmaður og skáld í yfir tuttugu ár og starfar einnig sem kennari.

Hátíðin fer í útrás í maílok til Seyðisfjarðar og Egilsstaða sem systurhátíð Skáldasuð, Skáldaþing, vísun í Múlaþing og verkefnastjóri hátíðarinnar þar er Katla Rut Pétursdóttir. Þá eru flestir listamenn sem taka þátt í sýningunni tengdir Suðurnesjum og Austfjörðum.

Skáldasuð er líka fyrir börn og ungmenni sem geta tekið þátt í sem skapandi einstaklingar og einnig hið fjölbreytta samfélag sem við búum í Reykjanesbæ. Börn á miðstigi Myllubakkaskóla og aðrir nemendur taka einnig þátt í hátíðinni með ljóðum víða um bæinn. Ljóðskáld á göngustígum, búðum og sundlaug fyrir utan nemendur eru; Vilborg Dagbjartsdóttir, Gríma Kamban, Gunnhildur Þórðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Guðergur Bergsson, Ingunn Snædal, Jónas Reynir Gunnarsson, Sigurjón Bergþór Daðason og Una Björk Kjerúlf.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sýning Skáldasuðs í ár, Heilun, inniheldur allt verk sem hafa texta að leiðarljósi, eru hugmyndir að ljóðverkum eða verk sem hafa heilun sem innblástur. Listamennirnir sem taka þátt eru Guðjón Ketilsson, Helgi Gíslason, Logi Bjarnason, Sandra Ólafsdóttir, Ethorio, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Seweryn Chwala, Kristín Rúnarsdóttir, Sandra María Sigurðardóttir, Katla Rut Pétursdóttir, Gunnhildur Þórðardóttir og Þórarinn Ingi Jónsson.

Sýningin opnar um leið og hátíðin fimmtudag 9. apríl kl.17 í Bíósal Duushúsa og þá verður einnig fyrri upplestur hátíðarinnar en skáld sem lesa eru: Kristín Ómarsdóttir, Steinunn Helgadóttir, Ewa Marcinek ásamt Bryndísi Jónatansdóttur aka Febrúar og Gunnar J. Straumland.

Seinni upplestur hátíðarinnar fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudag 16. apríl kl.17 og skáld sem taka þátt í þeim upplestri ásamt Gunnhildi Þórðardóttur eru; Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir en hún mun lesa upp úr nýútkominni ljóðabók sem hún þýddi eftir verðlaunaskáldið Mosab Abu Toha, Margrét Gísladóttir mun lesa upp úr nýútkominni ljóðabók, Mazen Maarouf verðlaunaskáld frá Palestínu, Valdimar Tómasson les upp úr nýrri ljóðabók Grímu Kamban, Gul viðvörun og Ægir Karl Ægisson mun lesa hugvekju.

Laugardag 18. apríl kl.13 verður svo ljóðalistsmiðja fyrir börn og foreldra í Duushúsum með höfundi hátíðarinnar Gunnhildi Þórðardóttur.

Höfundur hátíðarinnar mun einnig halda örupplestra í sundlaugum og á göngustígum á dagana 17. og 24. apríl og á meðan á hátíðinni stendur. Þeim verður varpað á facebook síðu Skáldasuðs.

Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari eins og áður sagði. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur gefið út sjö ljóðabækur og tekið þátt í fjölda upplestra.