KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Íþróttir

Grindavík komið í 2-0 - Keflavík jafnaði gegn KR
Sara Rún átti flottan leik í sigri Keflavíkur. VF/hilmarbragi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 4. apríl 2026 kl. 20:11

Grindavík komið í 2-0 - Keflavík jafnaði gegn KR

Grindavík steig stórt skref í átt að undanúrslitum þegar liðið lagði Val á heimavelli í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum í Bónus deild kvenna í körfubolta. Litlu síðar unnu Keflavíkurkonur KR og jöfnuðu 1-1 í einvíginu.

Grindavíkurkonur byrjuðu miklu betur og leiddu með ellefu stigum í hálfleik 43-32. Valskonur komu af miklum krafti í þriðja leikhluta og unnu hann með þrettán stigum og voru óvænt komnar í forystu. Þá tóku þær grindvísku sig til í andlitinu og kláruðu dæmið í síðasta leikahlutanum en það var jafnt fram í lokin. Lokatölur 79-73 og Grindavík komið með annan fótinn í undanúrslit.

Abby Beeman og Ellen Nystrom voru atkvæðamestar í liði Grindavíkur.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Farhiyja skoraði 13 og tók sjö fráköst. Isabella Ósk var með 12 stig og reif niður átta fráköst.

Staðan 2:0 fyrir Grindavík.

Keflavíkurkonur sterkari í lokin

Keflavík vann KR í öðrum leik liðanna í Blue höllinni og jafnaði þar með í einvíginu. Sviptingar voru nokkrar. KR leiddi eftir fyrsta leikhluta 18-23 en heimakonur svöruðu fyrir sig og leiddu með fjórum stigum í hálfleik 46-40.

Jafnt var á með liðunum í síðari hálfleik en Keflavíkurkonur voru sterkari í lokin og knúðu fram sigur í jöfnum leik.

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst með 22 stig og sex fráköst og Keihana Washington var mögnuð með 17 stig, 16 fráköst og tíu stoðsendingar, magnaðar tölur. Þá var Thelma Dís Ágústsdóttir öflug með 13 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar.

Keflavík-KR 88-77 (18-23, 28-17, 19-20, 23-17)

Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 22/6 fráköst, Keishana Washington 17/16 fráköst/10 stoðsendingar, Angelina Turmel 15/4 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 13/4 fráköst/5 stoðsendingar, Anna Ingunn Svansdóttir 8, Sofie Tryggedsson Preetzmann 7/7 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 3, Anna Lára Vignisdóttir 2, Agnes María Svansdóttir 1, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0.
KR: Molly Kaiser 22/6 fráköst/6 stoðsendingar, Eve Braslis 16/9 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 15/5 fráköst, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 12/12 fráköst, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 6/4 fráköst, Perla Jóhannsdóttir 3, Anna María Magnúsdóttir 3, Lea Gunnarsdóttir 0, Arndís Rut Matthíasdóttir 0, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Kaja Gunnarsdóttir 0, Guðný Helga Ragnarsdóttir 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson, Daníel Steingrímsson
Áhorfendur: 300
Viðureign: 1-1

Grindavík-Valur 79-73 (22-17, 21-15, 12-25, 24-16)

Grindavík: Ellen Nystrom 26/4 fráköst/5 stoðsendingar, Abby Claire Beeman 26/5 fráköst/8 stoðsendingar, Farhiya Abdi 13/7 fráköst/5 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir 12/8 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 2/4 fráköst, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Þórey Tea Þorleifsdóttir 0/5 fráköst, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0.
Valur: Reshawna Rosie Stone 28/6 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 18, Ásta Júlía Grímsdóttir 13/7 fráköst/5 stoðsendingar, Alyssa Marie Cerino 6/7 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 5/9 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 3, Hanna Gróa Halldórsdóttir 0, Sara Líf Boama 0/4 fráköst, Berta María Þorkelsdóttir 0, Ísey Ísis Guttormsdóttir Frost 0, Fatima Rós Joof 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0.
Dómarar: Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Birgir Örn Hjörvarsson, Friðrik Árnason
Áhorfendur: 236
Viðureign: 2-0

Keflavík - KR / Bónusdeild kvenna / 88:77