KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Mannlíf

Tímavélin flutti gesti Njarðvíkurskóla á milli áratuga á glæsilegri árshátíð
Laugardagur 4. apríl 2026 kl. 09:58

Tímavélin flutti gesti Njarðvíkurskóla á milli áratuga á glæsilegri árshátíð

Það var mikið um dýrðir þegar árshátíð Njarðvíkurskóla fór fram við mikla gleði og glæsibrag. Þema ársins var „Tímavélin“ og ferðuðust nemendur á milli áratuga í skemmtilegum atriðum sem hver árgangur hafði undirbúið af miklum metnaði. Útkoman var fjölbreytt og litrík dagskrá sem greinilega hitti í mark hjá gestum.

Íþróttahúsi skólans hafði verið breytt í glæsilegt leikhús þar sem vandað var til verka við ljós, hljóð og sviðsmynd. Nemendur í 9. og 10. bekk áttu stóran þátt í að láta hlutina ganga upp, en þeir sáu um lykilatriði á borð við sviðsstjórn, tæknimál og aðstoð bak við tjöldin. Frammistaða þeirra þótti til fyrirmyndar og sýndi vel hversu góð samvinna ríkir innan skólans.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sköpunargleðin skein úr hverju atriði og var stemningin í salnum frábær allan tímann. Eftir að sýningunni lauk var gestum boðið í skólann þar sem boðið var upp á kökur og drykki, og gátu nemendur og fjölskyldur þeirra átt þar notalega stund saman. Það er óhætt að segja að hátíðin hafi tekist einstaklega vel og eru margir strax farnir að hlakka til næsta árs.

Hér má sjá fjölmagar myndir frá árshátíðinni.

Við hvetjum aðra skóla á Suðurnesjum til að senda okkur efni frá árshátíðum á [email protected].