Valur svaraði fyrir sig í Keflavík og jafnaði einvígið 1-1
Valsmenn svöruðu fyrir sig með sigri í Blue höllinni í Keflavík þeir þeir lögðu heimamenn í spennandi leik 82-87 í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld.
Valsmenn gáfu tóninn í upphafi leiks með meiri ákefð og betri hittni og náðu sjö stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta og bættu svo við tveimur stigum í forskotið fyrir hálfleik, 39-48.
Keflvíkingar byrjuðu með látum í þriðja leikhluta og náðu áhlaupi 21-13 eins og þeir gerðu í fyrsta leik og minnkuðu muninn í eitt stig og þegar 21 sekúnda var til leiksloka var Valur þremur yfir. Gestirnir voru sterkari í blálokin og innsigluðu sigur og jöfnuðu einvígið 1-1.
Valsmenn voru einhvern veginn beittari og með yfirhöndina allan tímann og þrátt fyrir nokkur áhlaup heimamanna vantaði alltaf aðeins upp á. Á síðustu mínútunum náðu Valsmenn fleiri sóknarfráköstum en Keflvíkingar voru þó með fleiri sóknarfráköst í leiknum - og þeirra lykilmenn, Kári Jónsson, Antonio Woods og Callum Lawson skiluðu körfum sem tryggðu sigurinn en þremenningarnir voru með 18, 20 og 21 stig.
Remy Martin skoraði 20 stig hjá Keflavík en hann hefur ekki náð að vera með sömu skotnýtingu og þegar hann var með Keflavík fyrir tveimur árum. Hann var hins vegar oft að spila sína menn uppi og skila stoðsendingum. Mirza Bulic skoraði 18 stig og tók 9 fráköst.
Keflavík-Valur 82-87 (26-33, 13-15, 24-20, 19-19)
Keflavík: Remy Martin 20/5 stoðsendingar, Mirza Bulic 18/9 fráköst, Egor Koulechov 10/5 fráköst, Craig Edward Moller 10/8 fráköst, Hilmar Pétursson 9/6 fráköst/7 stoðsendingar, Jaka Brodnik 9, Halldór Garðar Hermannsson 6, Ólafur Björn Gunnlaugsson 0, Daniel Eric Ottesen Clarke 0, Nikola Orelj 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0.
Valur: Antonio Keyshawn Woods 21/4 fráköst/5 stoðsendingar, Callum Reese Lawson 20/4 fráköst, Kári Jónsson 18, Frank Aron Booker 15, Lazar Nikolic 7/6 fráköst, Kristófer Acox 6/15 fráköst, Hjálmar Stefánsson 0/4 fráköst, Ástþór Atli Svalason 0, Igor Maric 0, Karl Kristján Sigurðarson 0, Orri Már Svavarsson 0, Veigar Örn Svavarsson 0.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Jakob Árni Ísleifsson
Áhorfendur: 987
Viðureign: 1-1




