Grindvíkingar jöfnuðu með spennusigri - staðan 1-1
Grindavík jafnaði viðureignina við Njarðvík með sigri í Icemar höllinni í æsispennandi viðureign þar sem Njarðvíkingar voru með boltann síðustu hálfa mínútuna án þess að ná að skora. Lokatölur 84-86.
Leikurinn var jafn allan tímann og í hálfleik voru heimamenn með fimm stiga forskot, 49-44.
Grindvíkingar náðu að jafna leikinn og komast yfir en munurinn alltaf mjög lítill, alveg fram í blálokin og gestirnir náðu að vinna spennusigur.
Dwayne Lautier skoraði 30 stig fyrir Njarðvíkinga, Veigar Páll Alexandersson var með 14 stig sem og Dominykas Milka.
Hjá Grindvíkingum var Jordan Sample með 20 stig, Jeremy Parkor 20 og Daniel Mortensen 17. Deandre Kane skoraði 11 stig. Skrýtið með þann leikmann, maður hefur alltaf á tilfinningunni að þessi frábæri leikmaður geti skorað meira en svo er hann oft og iðulega í einhverju óútskýranlegu veseni.



