KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Öryggi smábátasjómanna í brennidepli í Sandgerði
Miðvikudagur 8. apríl 2026 kl. 13:52

Öryggi smábátasjómanna í brennidepli í Sandgerði

Fimmtudaginn 9. apríl næstkomandi verður efnt til mikils öryggisdags fyrir smábátasjómenn og aðra áhugamenn um sjósókn í húsi björgunarsveitarinnar Sigurvonar í Sandgerði. Tilefnið er sameiginlegur vorfundur Samgöngustofu, Félags smábátaeigenda og Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem fram fer á vefnum klukkan 17:00 til 18:30.

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein, í samvinnu við björgunarsveitir og slysavarnadeildir á Suðurnesjum, hvetur sjómenn til að koma saman í Sandgerði, horfa á fundinn í beinu streymi og njóta glæsilegra kaffiveitinga, súpu og tertu í boði slysavarnadeildanna Unu í Garði og Dagbjargar.

Markmið fundarins er að efla öryggi á sjó með fræðslu og kynningu á nýju efni. Á dagskránni er meðal annars sýnikennsla á frágangi björgunarbáta, kynning á hættumati og hinu nýja öryggisappi smábáta, Öggunni. Þá verða nýjar öryggisauglýsingar frumsýndar og farið yfir áherslur Slysavarnaskóla sjómanna og lögskráningarkerfið Skútuna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Að loknum fundi gefst gestum kostur á að skoða björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein og kynna sér ýmis tæki tengd sjóbjörgun í eigu björgunarsveitanna á svæðinu. Viðburðurinn er opinn öllum þeim sem starfa á smábátum sem og öðrum sem láta sig öryggismál á sjó varða.