Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Íþróttir

Dinkins tryggði Njarðvík sigur á lokasekúndunni
Miðvikudagur 8. apríl 2026 kl. 21:39

Dinkins tryggði Njarðvík sigur á lokasekúndunni

Það verður seint sagt að það skorti spennu í úrslitakeppnina í körfubolta ef marka má viðureign Njarðvíkur og Tindastóls í kvöld í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar kvenna. Eftir ótrúlega sveiflukenndan leik þar sem útlitið var orðið dökkt fyrir heimaliðið, steig Brittany Dinkins fram og setti niður flautuþrist þegar 1,2 sekúndur voru eftir, sem tryggði Njarðvík 88–87 sigur í hreinum spennutrylli.

Njarðvíkingar mættu til leiks af gríðarlegum krafti og skoruðu fyrstu 14 stig leiksins á meðan leikmenn Tindastóls virtust ókomnar til leiks. Þær létu loks sjá sig og svöruðu með 11–0 áhlaupi.

Í fjórða leikhluta virtust Stólarnir ætla að knýja fram sigur. Maddie og Emma Katrín fóru fyrir sínu liði og þegar skammt var eftir leiddu gestirnir með átta stigum, 74–82.

Nesraf
Nesraf

Lokasekúndurnar í leiknum voru hreint ótrúlegar en þegar 46 sekúndur voru til leiksloka leiddi Tindastóll með fjórum stigum, 80-84 en flestir vita að það getur verið langur tími í körfubolta og það reyndist raunin í þessum leik. Hulda María Agnarsdóttir skoraði þrist fyrir UMFN þegar 30 sekúndur voru eftir og staðan 83-84 fyrir Tindastól. Danielle Rodrigues kom síðan heimakonum yfir 85-84 þegar rúmar 3 sekúndur voru eftir og stuðningsmenn UMFN fögnuðu og héldu að nú væri sigurinn þeirra kominn í hús en nei, Madison Anne skoraði með frábærri körfu þegar hún braust í gegnum vörn UMFN og kom Tindastólskonum aftur yfir 85-86 og fékk vítaskot að auki. Þá eftir athugun dómara ákváðu þeir að 1,2 sekúndur væru eftir. Ljóst var að mistækist henni vítaskotið rynni leiktíminn út og sigurinn væri þeirra en boltinn fór ofan í körfuna og UMFN tók leikhlé, staðan 85-87 fyrir Tindastól og rúm sekúnda eftir.

Ljóst var að Einar Árni og Ólafur, þjálfarar UMFN höfðu teiknað plan sem virkaði því í síðustu sóknnni tóku Njarðvíkingar innkast á varnarhelmingi Tindastóls. Hulda María gaf á Brittany Dinkins sem kom hlaupandi út úr teignum, sneri sér við og sendi boltann utan við þriggja stiga línuna og beint ofan í körfuna. Magnaður sigur Njarðvíkinga var staðreynd.

Brittany Dinkins var að vanda stigahæst en hún skoraði 31 stig, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Danielle varmeð 25 stig, 10 fráköst og sex stoðsendingar. Báðar hreint magnaðar eins og nær alltaf. Hjá Tindastól skoraði Madison Anne 29 stig.

Einvíginu lauk því 3-0 fyrir Njarðvíkingar sem fá einhverja daga í hvíld á meðan hinar viðureignirnar klárast.

Njarðvík-Tindastóll 88-87 (26-19, 19-19, 12-24, 31-25)

Njarðvík: Brittany Dinkins 31/7 fráköst/7 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 25/10 fráköst/6 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 14, Hulda María Agnarsdóttir 12/4 fráköst, Inga Lea Ingadóttir 2, Sofia Roma 2, Krista Gló Magnúsdóttir 2, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0, Sara Björk Logadóttir 0/4 fráköst, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Tindastóll: Madison Anne Sutton 29/11 fráköst, Oceane Kounkou 20/4 fráköst, Roselis Silva 15/9 fráköst/6 stoðsendingar, Emma Katrín Helgadóttir 9, Marta Hermida 9/9 stoðsendingar, Brynja Líf Júlíusdóttir 3, Inga Sólveig Sigurðardóttir 2/5 fráköst, Eva Run Dagsdottir 0, Rannveig Guðmundsdóttir 0, Emilía Ragnheiður Barðdal Róbertsdóttir 0.
Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Jón Þór Eyþórsson, Einar Valur Gunnarsson
Áhorfendur: 587
Viðureign: 3-0