Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Keflvíkingar Scania meistarar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 15:37

Keflvíkingar Scania meistarar

Tíundi flokkur Keflavík í körfubolta drengja sigruðu á Scania Cup í Svíþjóð en það hefur verið haldið reglulega og er óopinbert Norðurlandamót. Keflvíkingar sigruðu sænska liðið Kungsholmen Basket í úrslitaleik mótsins 68-59 og unnu alla leiki sína í mótinu. Davíð Breki Antonsson og Arnar Freyr Elvarsson voru báðir valdir í lið mótsins og Davíð var svo valinn besti leikmaður (Scania King) mótsins í U16 ára aldursflokki.

Keflavíkurstrákarnir skoruðu níu þriggja stiga körfur gegn fjórum í úrslitaleiknum en þeir voru 21-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Sænska liðið fór i gang og leiddi 35-32 í leikhlé. Keflavik vann þriðja leikhlutann 21-14 og svo lokaleikhlutann 15-10. Frábær sigur.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Stelpurnar í 10. flokki gerðu einnig góða hluti en þær enduðu í 4. sæti eftir tap gegn sænska liðinu Duvpo 64-46 í leik um bronsið.

Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir var valin í lið mótsins en hún spilaði afar vel á mótinu.

Kamilla Nótt var valin í lið mótsins.