Grindvíkingar sterkari í lokin og leiða 2-1
Grindvíkinga eru komnir í bílstjórasætið í einvíginu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta eftir sigur á heimavelli í kvöld, 97-85.
Leikurinn bauð upp á sveiflur, fjör og spennu en heimamenn í Grindavík náðu þrettán stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar vöknuðu til lífsins og unnu næsta leikhluta með níu stigum. Staðan í hálfleik 52-48.
Gestirnir héldu áfram að bæta sinn leik og unnu næsta leikhluta með þremur stigum og minnkuðu muninn í eitt stig og því gat allt gerst.
Síðasti leikhlutinn var eign heimamanna og þeir tryggðu sér sigur og forystu í einvíginu.
NBA gaurinn Jeremy Parker leiddi stigaskor heimamanna og negldi niður slatta af stigum eða 31 stig en hann hefur verið að finna fjölina betur og betur. Deandre Kane og Semple skoruðu báðir 21 stig. Hjá Grindvíkingum kom Ragnar Örn Bragason inn af bekknum og skoraði tvo þrista en hann kom til liðsins um áramótin.
Hjá Njarðvík átti Luwane Pipkins sinn besta leik í vetur og skoraði 37 stig. Sven Smajlagic skoraði 16 stig.
Fjórði leikur liðanna verður 14. apríl í IceMar höllinni.
Grindavík-Njarðvík 97-85 (32-19, 20-29, 17-20, 28-17)
Grindavík: Jeremy Raymon Pargo 31/4 fráköst/9 stoðsendingar, Deandre Donte Kane 21/6 fráköst, Jordan Semple 19/9 fráköst/5 stoðsendingar, Daniel Mortensen 11/8 fráköst, Ólafur Ólafsson 7/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 6, Kristófer Breki Gylfason 2, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Arnór Tristan Helgason 0, Patrekur Atlason 0.
Njarðvík: Luwane Pipkins 37/5 fráköst, Sven Smajlagic 16/6 fráköst, Dwayne Lautier-Ogunleye 11/4 fráköst, Veigar Páll Alexandersson 8/6 fráköst/7 stoðsendingar, Dominykas Milka 7/7 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 4, Snjólfur Marel Stefánsson 2, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Sigurður Magnússon 0, Kristófer Mikael Hearn 0, Bóas Orri Unnarsson 0, Almar Orri Jónsson 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Jakob Árni Ísleifsson
Áhorfendur: 797
Viðureign: 2-1





