KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Rödd allra barna skiptir máli - fyrirtæki og Reykjanesbær í samstarfi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 06:00

Rödd allra barna skiptir máli - fyrirtæki og Reykjanesbær í samstarfi

Fyrirtækin Bergstál, Blikksmiðja Á.G. og Skiltagerðin hafa í samstarfi við Reykjanesbæ tekið höndum saman og sett upp útitjáskiptaborð á öllum leikskólalóðum í bæjarfélaginu.

Díana Hilmarsdóttir forstöðumaður Bjargarinnar og bæjarfulltrúi Framsóknar og Sigurgeir Rúnar Jóhannsson einn af eigendum Bergstál hafa haldið þétt utan um þetta verkefni.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Díana segir að útitjáskiptaborð séu mikilvægt verkfæri fyrir börn sem eigi erfitt með að tjá sig með orðum, sem og fyrir börn af erlendum uppruna sem eru að ná tökum á íslenskunni. Með slíkum skiltum geta börn tjáð þarfir sínar og óskir í leik, sagt frá líðan sinni og átt auðveldari samskipti.

„Rétturinn til að tjá sig er einn af grundvallarþáttum velferðar barna. Með þessu verkefni er stigið mikilvægt skref í átt að aukinni þátttöku, skilningi og inngildingu í leik og daglegu starfi á leikskólalóðum bæjarins,“ segir Díana en þess má einnig geta að árið 2022 var farið af stað með sambærilegt verkefni þegar Skötumessan og Reykjanesbær komu útitjáskiptaborðum fyrir á leiksvæðum allra grunnskóla í bænum.

„Hér er um að ræða afar dýrmætt samfélagsverkefni sem styður við börnin okkar og eflir samskipti, sjálfstæði og vellíðan þeirra í daglegu lífi,“ sagði Díana.