KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn kallar eftir auknum hraða í umferðaröryggi
Sérstaklega er nefnd Njarðarbrautin, en öryggi þar hefur lengi verið til umræðu, sem og leiðirnar sem börn bæjarins fara daglega til og frá námi.
Föstudagur 10. apríl 2026 kl. 10:41

Sjálfstæðisflokkurinn kallar eftir auknum hraða í umferðaröryggi

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fagna því að aðgerðir séu hafnar í umferðaröryggismálum en telja áætlunina ganga of hægt. Þeir benda á að lélegt aðgengi hamli nú þegar uppbyggingu í hverfum bæjarins.

Á fundi bæjarstjórnar lagði Guðbergur Reynisson (D) fram bókun vegna umferðaröryggisáætlunar bæjarins fyrir árin 2026–2030. Þar kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn telji bið íbúa eftir úrbótum hafa verið allt of langa, sérstaklega þegar litið er til öryggis barna við skóla og stofnanir.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Smartlýsingar og Njarðarbraut í forgang

Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir uppsetningu svokallaðrar „smartlýsingar“ við gangbrautir, sem á að auka sýnilega vegfarenda. Þótt fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagni þeirri tækni, vilja þeir að framkvæmdum verði flýtt enn frekar en áætlanir gera ráð fyrir.

Sérstaklega er nefnd Njarðarbrautin, en öryggi þar hefur lengi verið til umræðu, sem og leiðirnar sem börn bæjarins fara daglega til og frá námi.

40 einbýlishúsalóðir standa tómar

Athygli vakti í bókuninni að Sjálfstæðismenn tengja umferðaröryggi og aðgengi beint við skipulag og vöxt bæjarins. Nefna þeir Ásahverfi sem dæmi, þar sem erfitt aðgengi inn og út úr hverfinu hafi fælt fólk frá.

„Þar eru í dag 40 lausar einbýlishúsalóðir sem segir okkur mikið,“ segir í bókuninni.

Að mati flokksins er ljóst að ef Reykjanesbær ætlar að halda áfram öflugri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis verði innviðir og öryggi vegfarenda að fylgja með strax, en ekki mörgum árum síðar.