Nesraf
Nesraf

Íþróttir

Grindavík áfram í undanúrslit - Keflavík tapaði fyrir KR sem er yfir 2-1
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 22:02

Grindavík áfram í undanúrslit - Keflavík tapaði fyrir KR sem er yfir 2-1

Grindvíkingar eru komnar í undanúrslit eftir 3-0 sigur gegn Val en Keflavíkurkonur voru skotnar í kaf í fjórða leikhluta af KR-ingum í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta.

Grindvíkingar kláruðu verkefni sitt gegn Val með þriðja sigrinum í röð. Þær náðu tuttugu og tveggja stiga forskoti í fyrsta leikhluta og unnu öruggan 72-90 sigur og einvígið sannfærandi 3-0.

Keflvíkingar leiddu leikinn gegn KR í fyrstu þremur leikhlutunum, náðu tvívegis 14-15 stiga forskoti og leiddu með fimm stigum þegar fjórði leikhluti hófst. Heimakonur í KR mættu með kassann út og hreinlega jörðuðu Keflvíkinga sem réðu ekkert við stórleik Vesturbæjarkvenna. Jiselle Thomas fór mikinn fyrir KR og skoraði 19 stig í lokaleikhutanum, megnið þrista. Keflvíkingar réðu ekkert við hana og léku slaka vörn auk þess að ganga illa í sókn. Lokaleikhlutinn fór 29-10 og þessi frammistaða í lokin hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Keflvíkinga sem eru 1-2 undir í einvíginu.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

KR-Keflavík 94-80 (20-27, 24-22, 21-21, 29-10)

KR: Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 29/8 fráköst, Molly Kaiser 25, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 20/5 fráköst, Eve Braslis 8/8 fráköst, Perla Jóhannsdóttir 4, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 3/8 fráköst/6 stoðsendingar, Arndís Rut Matthíasdóttir 3, Anna María Magnúsdóttir 2, Klara Líf Pálsdottir 0, Kaja Gunnarsdóttir 0, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Lea Gunnarsdóttir 0.

Keflavík: Keishana Washington 34/7 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 15, Thelma Dís Ágústsdóttir 12/4 fráköst, Angelina Turmel 8/7 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 6, Sofie Tryggedsson Preetzmann 5/6 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 0, Agnes María Svansdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0, Anna Lára Vignisdóttir 0, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 0, Eva Kristín Karlsdóttir 0.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Davíð Kristján Hreiðarsson, Ingi Björn Jónsson

Áhorfendur: 323

Viðureign: 2-1

Valur-Grindavík 72-90 (11-33, 22-21, 23-19, 16-17)

Valur: Reshawna Rosie Stone 24/7 fráköst, Alyssa Marie Cerino 15/6 fráköst/5 stoðsendingar, Ásta Júlía Grímsdóttir 12/5 fráköst, Sara Líf Boama 9/8 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 7/7 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 3, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 2, Berta María Þorkelsdóttir 0, Ísey Ísis Guttormsdóttir Frost 0, Fatima Rós Joof 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0, Hanna Gróa Halldórsdóttir 0.

Grindavík: Abby Claire Beeman 23/7 fráköst/7 stoðsendingar, Farhiya Abdi 15, Isabella Ósk Sigurðardóttir 14/12 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 13, Þórey Tea Þorleifsdóttir 12, Ellen Nystrom 9/6 fráköst/7 stoðsendingar, Emilie Sofie Hesseldal 4, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson, Bjarni Rúnar Lárusson

Áhorfendur: 368

Viðureign: 0-3