Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Guðjón Þorgils er fulltrúi Suðurnesja í söngkeppni framhaldsskólanna í beinni á RÚV
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 10:14

Guðjón Þorgils er fulltrúi Suðurnesja í söngkeppni framhaldsskólanna í beinni á RÚV

Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður fulltrúi skólans í söngkeppni framhaldsskólanna sem verður í beinni útsendingu á RÚV laugardagskvöldið 11. apríl.

Guðjón Þorgils er efnilegur söngvari frá Suðurnesjabæ sem hefur vakið athygli fyrir sterka rödd og góða sviðsframkomu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar sýnt mikla hæfileika og metnað í tónlist.

Guðjón segist hafa mikla ástríðu fyrir söng og sviðslistum og vinni stöðugt að því að þróa sig sem listamaður. Hann nýtur þess að koma fram og tengjast áhorfendum í gegnum tónlistina.

Nesraf
Nesraf

Hann segist hafa undirbúið sig vel fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna þar sem hann mun flytja lagið Strange eftir Celeste. Guðjón er textahöfundur íslensku útgáfu lagsins, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt“, og setur þar sinn eigin svip á lagið.