Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Lögreglan á Suðurnesjum krefst gæsluvarðhalds vegna umsáturseineltis
Föstudagur 10. apríl 2026 kl. 14:10

Lögreglan á Suðurnesjum krefst gæsluvarðhalds vegna umsáturseineltis

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einstakling í tengslum við rannsókn á alvarlegu umsáturseinelti. Handtakan átti sér stað í kjölfar þess að dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu í morgun, en sú birting er sögð hluti af rannsókn málsins.

Hinn handtekni hefur áður verið til rannsóknar vegna fjölda annarra tilvika er varða umsáturseinelti á undanförnum árum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þeim málum ekki lokið.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Vegna alvarleika málsins og sögu viðkomandi hyggst lögreglan fara fram á gæsluvarðhald yfir aðilanum síðar í dag. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina eða tildrög hennar að svo stöddu, segir í tilkynningu lögreglu.