Suðurnesin korter í kreppu í gamanóperu í Hljómahöll
Norðuróp í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar munu flytja gamanóperuna Gianni Schicchi eftir G. Puccini í Hljómahöllinni í maí nk. Sýningar verða 15. 16. og 17. maí en hver sýning er ein klukkustund.
Jóhann Smári Sævarsson hjá Norðurópi sem jafnframt er stjórnandi og leikstjóri segir um sé að ræða fræga gamanóperu, sungna á íslensku og staðfærð á Suðurnesin korter í kreppu.
Í aðalhlutverkum er m.a. Gissur Páll Gissurarson, Kristinn Þór Schram Reed, Jóhanna María Kristinsdóttir og Hildur Jóhannsdóttir. Söngfólk frá Suðurnesjum er einnig í hópi leikara.
Söguþráður: Ríkur gamall karl er að deyja og gráðugir ættingjarnir eru mættir í von um arf. En karlinn hafði annað í huga. Í örvæntingu sinni leita þau til Gianni Schicchi, manni frá Ítalíu og bjóða honum gull og græna skóga ef hann getur leyst málið. Gianni gerir það en kannski ekki alveg eins og þau áætluðu...
Miðasala er hafin á tix.is
Leikarahópurinn:
Rikki - Gissur Páll Gissurarson
Gianni Schicchi - Kristinn Þór Schram Reed
Lauretta - Martyna Gesella, Jóhanna María Kristinsdóttir, Guðrún Hildur Jóhannsdóttir
Sigga - Bryndís Schram Reed, Rósalind Gísladóttir
Símon - Keith Reed
Margeir - Áslákur Ingvarsson
Berti - Ragnar Pétur Jóhannsson
Stella - Jelena Raschke, Linda Pálína Sigurðardóttir
Geirmundur - Magnús Guðmundsson
Hildur: Sigrún Lína Ingólfsdóttir, Birna Rúnarsdóttir, Steinunn Björg Ólafsdóttir
Læknir - Ingi Eggert
Lögfræðingur - Guðríður Eva Halldórsdóttir,
Vitni: Ösp Birgisdóttir, Guðrún Hildur Jóhannsdóttir




