KSteinarsson bílaúrval
KSteinarsson bílaúrval

Mannlíf

Guðjón sigraði í söngvakeppninni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 11. apríl 2026 kl. 23:33

Guðjón sigraði í söngvakeppninni

Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sigraði í söngkeppni framhaldsskólanna sem var í beinni útsendingu á RÚV og fór fram í Háskólabíói í kvöld. 

Tuttugu og fimm söngvarar mættu til leiks. Í dómnefnd voru Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson. Þeirra þáttur réði helming, hitt var sms kosning.

Guðjón Þorgils er efnilegur söngvari frá Suðurnesjabæ sem hefur vakið athygli fyrir sterka rödd og góða sviðsframkomu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar sýnt mikla hæfileika og metnað í tónlist.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Guðjón segist hafa mikla ástríðu fyrir söng og sviðslistum og vinni stöðugt að því að þróa sig sem listamaður. Hann nýtur þess að koma fram og tengjast áhorfendum í gegnum tónlistina.

Hann segist hafa undirbúið sig vel fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna þar sem hann flutti lagið Strange eftir Celeste. Guðjón er textahöfundur íslensku útgáfu lagsins, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt“, og setur þar sinn eigin svip á lagið.