Umdeild flautukarfa Vals gegn Keflavík
Keflvíkingar eru komnir undir í einvíginu við Valsmenn eftir tap á Hlíðarenda í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta. Sigurkarfa Vals kom þegar 0,4 sekúndur voru til leiksloka. Lokatölur 79-78 fyrir Val og þeir leiða 2-1.
Remy Martin kom Keflavík í forystu með glæsikörfu í blálokin og leikklukkan sýndi 0,4 sekúndur eftir þegar Valsmenn fengu tilraun til að skora sem Kári Jónsson gerði á ótrúlegan hátt fyrir utan þriggja stiga línuna og tryggði heimamönnum ótrúlegan sigur þegar Keflvíkingar töldu sig komna með sigurinn. Daníel Guðni þjálfari Keflvíkinga sagði að það ætti ekki að vera hægt að skora þriggja stiga körfu á 0,4 sekúndum. Dómararnir voru á öðru máli.
Annars byrjuðu Keflvíkingar betur í upphafi leiks. Þeir leiddu með sjö stigum í leikhlé en Valsmenn svöruðu fyrir sig í síðari hálfleik og leiddu fram í lokin þegar Keflvíkingar náðu að jafna og komast yfir þegar 0,4 sek. voru eftir.
Antonio Woods var enn og aftur sá sem leiddi stigaskor Valsmanna og var með 27 stig. Kári Jónsson sem skoraði sigurkörfu Vals var þó bara með 9 stig og hvíldi stóran hluta fjórða leikhluta.
Mirza Bulic skoraði mest hjá Keflavík og var með 18 stig og 13 fráköst.
Valur-Keflavík 79-78 (16-18, 17-22, 22-12, 24-26)
Keflavík: Mirza Bulic 18/13 fráköst, Craig Edward Moller 14/5 fráköst, Remy Martin 13/7 stoðsendingar, Hilmar Pétursson 12, Egor Koulechov 11/10 fráköst, Ólafur Björn Gunnlaugsson 5, Jaka Brodnik 3, Halldór Garðar Hermannsson 2, Eyþór Lár Bárðarson 0, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Nikola Orelj 0.
Valur: Antonio Keyshawn Woods 27/5 fráköst, Frank Aron Booker 12, Kári Jónsson 9/4 fráköst/5 stoðsendingar, Lazar Nikolic 9/7 fráköst, Callum Reese Lawson 9/4 fráköst, Kristófer Acox 8/13 fráköst/6 stoðsendingar, Ástþór Atli Svalason 3, Hjálmar Stefánsson 2, Igor Maric 0, Karl Kristján Sigurðarson 0, Orri Már Svavarsson 0, Veigar Örn Svavarsson 0.
Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Briem, Eggert Þór Aðalsteinsson
Áhorfendur: 1049
Viðureign: 2-1




