Valdís kjörin formaður Kvenna i orkumálum
Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KÍO) á síðasta aðalfundi félagsins. Valdís tekur við keflinu á spennandi tímum þar sem orkugeirinn gegnir lykilhlutverki, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Það eru forréttindi að fá að leiða KÍO einmitt núna,“ segir Valdís Guðmundsdóttir, nýkjörinn formaður KÍO. „Það er mikil gerjun í orku- og veitugeiranum og við erum í miðjum orkuskiptum þar sem tækifærin til nýsköpunar og snjallra lausna liggja hvarvetna. Við þurfum bara að koma auga á þau og nýta þau. Viðfangsefnin krefjast þess að við fáum til liðs við okkur lausnamiðað fólk með ólíka sýn og fjölbreyttan bakgrunn“.
Valdís leggur áherslu á að hlutverk KÍO sé að vera raunverulegt hreyfiafl í geiranum.
„Með því að gera kvenfyrirmyndir sýnilegri, styrkja tengsl kvenna og bjóða markvissa fræðslu, leggur KÍO sitt af mörkum til að færa okkur í átt að auknu jafnrétti í geiranum. Þannig byggjum við upp fjölbreyttan og kröftugan orkugeira sem er reiðubúinn fyrir verkefni framtíðarinnar.“
Samhliða formannskjörinu var ný og öflug stjórn kynnt en hún er að þessu sinni skipuð breiðum hópi sérfræðinga úr röðum bakhjarla félagsins. Í nýrri stjórn sitja:
•Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samorku.
•Hrefna Björg Gylfadóttir, verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum.
•Ragnhildur Thorlacius, lögfræðingur hjá Orkuveitunni.
•Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu hjá Landsvirkjun.
•Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.
•Sigurborg Rútsdóttir, verkefnastjóri hjá Rarik.
•Stefanía Sif Stefánsdóttir, sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis hjá Landsneti.
•Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun.
•Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar.



