Hér eru framboðin á Suðurnesjum
Fimm listar bjóða fram í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, 16. maí. Í Suðurnesjabæ eru framboðin fjögur og í Vogum eru þau einnig fjögur talsins. Þá bjóða þrjú framboð fram í Grindavík í kosningunum í maí.
Fimm listar bjóða fram í Reykjanesbæ
Fimm gildir framboðslistar hafa verið samþykktir af yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næstkomandi.
B-listi: Framsóknarflokkurinn
C-listi: Viðreisn
D-listi: Sjálfstæðisflokkurinn
M-listi: Miðflokkurinn
S-listi: Samfylkingin
Fjórir listar í framboði í Suðurnesjabæ
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar hefur staðfest fjóra framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara þann 16. maí næstkomandi. Allir mótteknir listar uppfylltu skilyrði laga.
Framboðslistarnir sem hafa verið samþykktir eru:
B-listi: Framsókn og óháðir
D-listi: D-listinn og óháðir
M-listi: Miðflokkurinn
S-listi: Samfylkingin og óháðir
Þrír listar í kjöri í Grindavík
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar hefur staðfest að þrjú framboð verði í boði fyrir íbúa í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026.
Eftirfarandi listar verða á kjörseðlinum:
B-listi: Framsóknarflokkurinn
D-listi: Sjálfstæðisflokkurinn
M-listi: Miðflokkurinn
Fjögur framboð staðfest í Vogum
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur staðfest að þrjú framboð verði í boði fyrir íbúa í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026.
A-listi: Fyrir samfélagið
D-listi: Sjálfstæðismenn og óháðir
E-listi: Framboðsfélag E-listans
L-listi: Framfarafélag L-listans



