Steinn Erlingsson borinn til grafar
Útför Steins Erlingssonar fór fram frá Keflavíkurkirkju í gær, 14. apríl. Steinn, sem lést þann 1. apríl síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, var einn dáðasti einsöngvari Suðurnesja og lét eftir sig stórt skarð í menningarlífi svæðisins.
Prestur við útförina frá Keflavíkurkirkju var séra Sigurður Grétar Sigurðsson. Organistar voru þau Arnór Vilbergsson og Ester Ólafsdóttir. Elísa Elíasdóttir lék á fiðlu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju sungu og einsöng annaðist Aron Axel Cortes. Umsjón útfarar var hjá Útfararþjónustu Suðurnesja.
Steinn fæddist í Steinshúsi í Garði árið 1939. Hann var vélstjóri að mennt og stundaði sjómennsku í um tvo áratugi áður en hann hóf störf hjá Hitaveitu Suðurnesja við stofnun hennar. Þar starfaði hann allt til starfsloka vegna aldurs.
Söngurinn var hans ástríða
Þótt Steinn hafi starfað við tæknistörf var það söngurinn sem var hans helsta lífsstarf í augum margra. Hann hóf markvisst söngnám þegar hann kom í land á áttunda áratugnum og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1985, auk þess sem hann sótti framhaldsnám til Bandaríkjanna.
Steinn var burðarás í Karlakór Keflavíkur og síðar Kór Keflavíkurkirkju, þar sem hann söng allt til dauðadags. Hann var eftirsóttur einsöngvari og kom fram á ótal tónleikum og kirkjulegum athöfnum víða um land og erlendis. Árið 1996 gaf hann út hljómplötuna Ó, bjarta nótt.
Framlag Steins til tónlistar var margviðurkennt. Hann hlaut Liljuna, heiðursviðurkenningu þjóðkirkjunnar, og í desember 2024 var hann sæmdur Súlunni, menningarverðlaunum Reykjanesbæjar, fyrir áratugalangt starf sitt í þágu menningarlífs á Suðurnesjum.
Steinn var kvæntur Hildi Guðmundsdóttur (d. 2012) og eignuðust þau fjögur börn, en tveir synir þeirra, Einar Ólafur og Guðmundur Kristinn, eru látnir. Barnabörn Steins eru sjö og barnabarnabörnin átta. Síðustu tólf ár var Hafdís Daníelsdóttir kær vinkona hans og förunautur.





