Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Már Gunnarsson lauk tónleikaröð með Manchester-hljómsveit í Hljómahöll
Frá tónleikunum í Hljómahöll. Myndir: Hljómahöll
Laugardagur 28. nóvember 2026 kl. 14:16

Már Gunnarsson lauk tónleikaröð með Manchester-hljómsveit í Hljómahöll

Már Gunnarsson kom fram ásamt Ísold og hljómsveit Royal Northern College of Music í Hljómahöll í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Tónleikarnir, sem báru yfirskriftina The Grand Final Show, voru þeir þriðju og síðustu í tónleikaröð Más með hljómsveitinni á Íslandi.

Á efnisskránni voru verk eftir Má ásamt lögum sem hafa mótað hann sem tónlistarmann, í nýjum sinfóníuútsetningum. Már lék á píanó og prófessor Andy Stott stjórnaði hljómsveitinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Már er á lokaári við Royal Northern College of Music í Manchester, þangað sem hann hélt til náms fyrir fjórum árum. Hljómsveitina skipa um þrjátíu ungir hljóðfæraleikarar sem koma meðal annars fram með BBC Philharmonic, The Hallé og Opera North.

Fyrir tónleikana sagði Már samstarfið við hljómsveitina hafa verið sér mikinn lærdóm. Hann sagðist hlakka til að taka á móti hópnum í heimabæ sínum og þakkaði heimamönnum og styrktaraðilum fyrir stuðninginn við verkefnið.

Már í Hljómahöll 2026

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100