Nemendur Njarðvíkurskóla fögnuðu degi íslenskrar tungu í Stapa
Nemendur Njarðvíkurskóla fluttu ljóð og tónlist á hátíð í Stapa í Hljómahöll miðvikudaginn 25. nóvember. Hátíðin var haldin þar í tilefni af 85 ára starfsafmæli skólans á þessu skólaári.
Rósa Kristín formaður nemendaráðs og Grétar Atli varaformaður ráðsins stýrðu dagskránni. Berglind Elva og Hrafnhildur Embla, nemendur í 8. bekk, lásu æviágrip Jónasar Hallgrímssonar og fluttu ljóð eftir skáldið.
Anton Hardonk úr 7. bekk og Sóllilja Valsdóttir úr 4. bekk fluttu tónlistaratriði. Þau stunda bæði nám við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Dagur íslenskrar tungu er haldinn ár hvert 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Hátíð Njarðvíkurskóla fer venjulega fram í sal skólans.
Hér er umfjöllun og fleiri myndir.






