Nemendur FS sýna verk sín á samsýningu framhaldsskólanna
Nemendur í myndlistargreinum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sýna verk sín á árlegri samsýningu framhaldsskólanna sem verður opnuð 27. nóvember. Sýningin fer fram í Sögu, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og þar getur almenningur skoðað verk nemenda af landinu öllu til og með 3. desember.
Nemendur FS unnu að uppsetningu sýningarinnar ásamt kennara sínum, Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Á sýningunni fá þau tækifæri til að kynna það sem þau hafa unnið í náminu, skiptast á hugmyndum og kynnast nemendum úr öðrum skólum.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru rauður þráður í sýningunni. Nemendur geta merkt verk sín með spjaldi sem vísar til þess markmiðs sem þeir telja eiga best við hvert verk. Með því geta þeir sýnt hvernig viðfangsefni þeirra tengjast sjálfbærri þróun.
Sýningunni er ætlað að vekja athygli á mikilvægi list- og verkgreina í námi og samfélagi og hvetja til nýsköpunar, frumkvöðlastarfs, sjálfbærni og samþættingar STEAM-greina.
Sýningin er opin almenningi daglega kl. 10–18 frá 27. nóvember til og með 3. desember.








