Ástþór Óðinn snýr aftur með persónulegt lag
Njarðvíkurrapparinn Ástþór Óðinn hefur sent frá sér lagið „Ég á mér stund“, þriðja lagið af væntanlegri plötu hans sem fyrirhugað er að komi út á næsta ári. Lagið fjallar um söknuð og samtal við látna móður.
Ástþór hóf að semja á ný í febrúar eftir langt hlé frá textasmíðum. Hann hefur nú tekið upp samstarf við tónlistarmanninn og trommarann Ólaf Ingólfsson. Áður hafa komið út lögin „Telemakkos“ og „Áfram og áfram“ úr samstarfinu.
Nýja lagið er að vissu leyti framhald af „Mamma“, sem Ástþór flutti ásamt Möggu Eddu á plötunni Both Ways árið 2009. Þar skrifaði hann móður sinni, sem lést úr krabbameini árið 1997, bréf í formi lags og sagði henni frá gangi lífsins.
Í „Ég á mér stund“ tekur hann aftur upp þráðinn. Textinn lýsir því axð setjast við leiði ástvinar og eiga samtal um lífið, segja frá því sem hefur gerst og því sem stendur yfir. Söknuðurinn er enn til staðar en reynsla og aukinn þroski setja mark sitt á frásögnina.
Ástþór semur textann, rappar og syngur. Ólafur gerir taktinn undir listamannsnafninu Dögg og sér jafnframt um hljóðblöndun og útsetningu. Lagið var tekið upp í Dögg Stúdíó í Njarðvík, sem er í eigu Ólafs.
Ástþór var áberandi í rappsenunni á Suðurnesjum frá aldamótum og fram undir 2010 og var meðal þeirra sem ruddu hipphoppi braut á svæðinu. Hann hefur gefið út þrjár plötur: Operation On The Mic undir nafninu Iceberg árið 2002, Í sitthvoru horninu með dúóinu 2 Leikmenn árið 2007 og Both Ways undir eigin nafni árið 2009.
Ólafur á einnig langan feril að baki í tónlistarlífi Suðurnesja, einkum í rokki og þungarokki. Hann hefur meðal annars leikið með Tommy Gun Preachers, Hellvar og Rolf Hausbentner Band.
„Ég á mér stund“ er aðgengilegt á helstu streymisveitum.






