GeoSilica hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026
eoStep®-aðferð fyrirtækisins breytir rekstraráskorun jarðvarmavirkjana í verðmætar afurðir.
GeoSilica hlýtur Nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 fyrir GeoStep®-aðferðina, sem fjarlægir kísil úr jarðhitavökva áður en hann fellur út í kerfum jarðvarmavirkjana. Með aðferðinni er dregið úr útfellingum og viðhaldsþörf um leið og kísillinn er nýttur í verðmætar afurðir. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhenti verðlaunin í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 19. nóvember. Þetta er í sjötta sinn sem Nýsköpunarverðlaun Samorku eru veitt.
Frá útfellingum til verðmæta
Kísill í jarðhitavökva getur fallið út í búnaði jarðvarmavirkjana og skapað vandamál í rekstri. GeoStep tekur á þessari áskorun með því að fjarlægja kísilinn áður en hann fellur út í kerfunum og umbreyta honum í söluvöru. Þannig sameinar aðferðin lausn á rekstrarvanda og betri nýtingu jarðhitaauðlindarinnar.
Dómnefnd leggur sérstaka áherslu á að GeoStep sé fullþróuð lausn sem hafi verið sannreynd við raunverulegar aðstæður, sé komin í rekstur og afurðir hennar komnar á markað.
„GeoStep aðferð GeoSilica er framúrskarandi dæmi um íslenska nýsköpun sem byggir á þekkingu og reynslu úr jarðvarmageiranum,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.
Þar segir jafnframt að aðferðin sameini tæknilegt nýnæmi, bætta auðlindanýtingu og verðmætasköpun. Dómnefnd telur mikla möguleika felast í sókn á aðra jarðvarmamarkaði með GeoStep og að framleiðsla á Íslandi sé aðeins fyrsta skrefið.
Rökstuðningur dómnefndar í heild sinni:
GeoStep aðferð GeoSilica er framúrskarandi dæmi um íslenska nýsköpun sem byggir á þekkingu og reynslu úr jarðvarmageiranum. Með aðferðinni er kísill fjarlægður úr jarðhitavökva áður en hann fellur út í kerfum jarðvarmavirkjana og honum umbreytt í verðmætar afurðir. Þannig er tekið á raunverulegu rekstrarvandamáli, dregið úr útfellingum og viðhaldsþörf og stuðlað að aukinni verðmætasköpun úr jarðhitaauðlindinni.
Dómnefnd horfði sérstaklega til þess að GeoStep er ekki aðeins hugmynd heldur fullþróuð lausn sem hefur verið sannreynd við raunverulegar aðstæður, er komin í rekstur og vörur hennar komnar á markað. Aðferðin sameinar tæknilegt nýnæmi, bætta auðlindanýtingu og verðmætasköpun með því að breyta því sem annars getur verið áskorun í rekstri jarðvarmavirkjana í söluvöru.
GeoSilica er verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Samorku árið 2026. Framleiðsla á Íslandi er aðeins fyrsta skrefið, en miklir möguleikar felast í sókn á aðra jarðvarmamarkaði með GeoStep aðferðinni.
Hugvit sem skilar ávinningi
Með Nýsköpunarverðlaununum vill Samorka vekja athygli á framúrskarandi lausnum á sviði orku- og veitumála. Verðlaunin draga fram hvernig þekking og hugvit geta stutt við orkuskipti, bætt nýtingu auðlinda og skapað ný verðmæti.






