Suðurnesjalína 2 verður spennusett í dag
Suðurnesjalína 2 verður spennusett í dag klukkan 16. Með línunni fá Suðurnes aðra tengingu við flutningskerfi raforku, sem eykur afhendingaröryggi og flutningsgetu til og frá svæðinu. Línan styrkir þannig grunn að daglegu lífi, atvinnuuppbyggingu, verðmætasköpun og orkuskiptum á Suðurnesjum, segir í frétt frá Landsneti.
Suðurnesjalína 1 hefur hingað til verið eina flutningsleið raforku milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Önnur tenging auðveldar viðhald og viðbrögð við bilunum. Samhliða uppbyggingu tengivirkis á Njarðvíkurheiði og tengdra flutningsmannvirkja verður raforkukerfið sveigjanlegra og öruggara í rekstri. Aukin flutningsgeta styður bæði við raforkunotkun á Suðurnesjum og flutning raforku frá virkjunum á Reykjanesi.
Suðurnesjalína 2 er 220 kV háspennulína milli tengivirkjanna í Hamranesi í Hafnarfirði og á Njarðvíkurheiði. Hún er um 30 kílómetra löng, að mestu loftlína en með jarðstreng næst Hamranesi.
Undirbúningur Suðurnesjalínu 2 hófst árið 2005. Framkvæmdir hófust árið 2016 en voru stöðvaðar eftir dóm Hæstaréttar árið 2017 þar sem heimild til eignarnáms var ógild. Í kjölfarið voru allir ferlar við undirbúning framkvæmda hjá Landsneti endurskoðaðir og bættir. Verkefnið fór síðan í nýtt umhverfismat og leyfisferli. Jarðvinna við loftlínuhluta Suðurnesjalínu 2 hófst að nýju í júlí 2024 en leyfisferli og dómsmál höfðu áhrif á framvindu verkefnisins. Mikill lærdómur varð af ferlinu og dómur Hæstaréttar í maí 2026 er staðfesting á sjónarmiðum Landsnets og þeirri málsmeðferð sem unnið er eftir við undirbúning framkvæmda.
Suðurnesjalína 2 í tölum
- Spenna: 220 kV.
- Heildarlengd: Um 30 km.
- Loftlína: Um 28,5 km.
- Jarðstrengur: Um 1,6 km.
- Möstur: 86 stálmöstur, þar af 6 einpóla möstur í Hafnarfirði.
- Álleiðarar: Um 215 tonn.
- Stál í möstrum: 800 tonn.






