Gunnar Þórarinsson borinn til grafar
Útför Gunnars Þórarinssonar, viðskiptafræðings og fyrrverandi bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ, fór fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, miðvikudaginn 18. nóvember. Gunnar lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum 3. nóvember, 77 ára að aldri.
Séra Baldur Rafn Sigurðsson jarðsöng Gunnar. Arnór Vilbergsson lék á orgel og félagar úr Kór Keflavíkurkirkju sungu. Gissur Páll Gissurarson og Davíð Ólafsson sungu einsöng. Umsjón útfarar var hjá Útfararþjónustu Suðurnesja.
Gunnar fæddist í Reykjavík 11. apríl 1949. Hann var viðskiptafræðingur og húsasmiður að mennt og flutti með fjölskyldu sinni til Njarðvíkur árið 1976. Hann kenndi viðskiptagreinar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 1977 til ársloka 1990 og rak Rekstrarþjónustuna ásamt eiginkonu sinni um áratugaskeið.
Gunnar sat í bæjarstjórn Reykjanesbæjar árin 2010–2022, fyrst fyrir Sjálfstæðisflokkinn og síðar fyrir Frjálst afl. Hann var um skeið forseti bæjarstjórnar, sat í bæjarráði og var formaður stjórnar HS Veitna árin 2015–2019.
Gunnar tók virkan þátt í íþrótta- og félagsmálum á Suðurnesjum. Hann var meðal annars formaður knattspyrnudeildar UMFN, Íþróttabandalags Suðurnesja og Golfklúbbs Suðurnesja. Hann hlaut viðurkenningar fyrir störf sín í íþróttahreyfingunni og sat um árabil í sóknarnefnd Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Steinunn Sighvatsdóttir. Börn þeirra eru Guðni Þór, Sighvatur Ingi og Sunna.





