Kortleggja á möguleg móttökusvæði fyrir mengaðan jarðveg á Suðurnesjum
Til stendur að kortleggja möguleg svæði fyrir móttöku mengaðs jarðvegs á Suðurnesjum. Óskað hefur verið eftir að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga svæðisskipulagsins tilnefni fulltrúa í sameiginlegan starfshóp um verkefnið.
Málið kom fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar 12. nóvember þegar fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja voru lagðar fram.
Tveir fulltrúar Reykjanesbæjar sitji fundina
Bæjarráð tilnefndi Gunnar Kristin Ottósson skipulagsfulltrúa í starfshópinn og Margréti Lilju Margeirsdóttur, deildarstjóra umhverfismála, sem varamann. Ráðið óskar eftir að þau sitji bæði fundi hópsins.
Í fundargerðinni eru ekki nefnd ákveðin svæði sem koma til greina. Verkefni hópsins er að kortleggja möguleikana.





