Krefjast breytinga á áætlun Þórkötlu og aðkomu Grindvíkinga
Bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að Grindvíkingar fái að koma að endurskoðun áætlunar Þórkötlu. Í pistli bæjarstjórnar frá 16. nóvember segir að bæjarstjórnin hafi lýst yfir vantrausti á vinnubrögð félagsins og að það verði að vinna traust íbúa á ný með þéttu og góðu samráði.
Í pistlinum er vísað til íbúafundar í Gjánni 11. nóvember, þar sem fundarmenn settu fram ýmsar tillögur að breytingum á áætluninni. Bæjarstjórn hefur tekið saman níu helstu tillögurnar og segir Þórkötlu og stjórnvöld verða að ræða þær af fullri alvöru við íbúa.
Meðal tillagnanna er að upphafi áætlunarinnar verði seinkað svo barnafjölskyldur þurfi ekki að flytja á miðju skólaári. Þá er lagt til að hollvinasamningar verði framlengdir og boðið verði upp á leigu á kostnaðarverði þar til atburðinum lýkur.
Einnig vilja fundarmenn að verð taki mið af stöðunni í dag, sömu reglur gildi um ástand húsa í báðar áttir og greiðslubyrði verði léttari í upphafi. Aðrar tillögur snúa að lengri forkaupsrétti, niðurfellingu stimpil- og þinglýsingargjalda og beinni aðkomu Grindvíkinga að endurskoðun áætlunarinnar.
Bæjarstjórn segir sterka samstöðu hafa komið fram á fundinum um að Grindvíkingar fái að móta eigin framtíð. Hún hyggst fylgja tillögunum eftir við Þórkötlu og stjórnvöld.
„Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga,“ segir í lok pistilsins.







