Öllum tilboðum í stækkun Suðurvalla hafnað
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur hafnað öllum tilboðum í stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla þar sem þau voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Áfram er unnið að lausn til að fjölga leikskólarýmum en ekki liggur fyrir hvenær nýjar deildir geta tekið til starfa.
Þetta kemur fram í tilkynningu sveitarfélagsins í kjölfar ákvörðunar bæjarráðs frá 13. nóvember. Útboðið tók til kaupa og uppsetningar færanlegra húseininga fyrir þrjár leikskóladeildir ásamt starfsmannaaðstöðu. Tilboðsfrestur rann út 5. nóvember.
Eins og Víkurfréttir greindu nýverið frá hafði bæjarstjórn samþykkt allt að 351 fermetra stækkun leikskólans. Sú samþykkt laut að afgreiðslu áformanna að lokinni grenndarkynningu. Í tilkynningu sveitarfélagsins er áréttað að með henni hafi hvorki verið samþykkt tilboð í framkvæmdina né ákveðið hvenær húsnæðið yrði tekið í notkun.
Bæjarstjóra hefur nú verið falið að vinna áfram að lausn í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og starfshóp um stækkun leikskólans. Leggja á tillögu fyrir bæjarráð þar sem útfærsla, kostnaður og tímasetningar liggja fyrir. Jafnframt verður aflað upplýsinga um stöðu leik- og grunnskólalóðar í Grænuborgarhverfi.
Sveitarfélagið segir þörfina fyrir fleiri leikskólarými brýna og kveðst gera sér grein fyrir þeirri óvissu sem biðin skapar fjölskyldum. Áhersla sé lögð á að finna raunhæfa leið til að fjölga rýmum sem fyrst og tryggja góða aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Foreldrar og aðrir íbúar verði upplýstir um framvinduna.







