Fréttir

Brimvarnargarðinum í Njarðvíkurhöfn lokið
Brimvarnargarðurinn á framkvæmdatímanum.
Mánudagur 16. nóvember 2026 kl. 01:57

Brimvarnargarðinum í Njarðvíkurhöfn lokið

Uppbyggingu nýs brimvarnargarðs í Njarðvíkurhöfn er lokið. Með tilkomu hans hefur innsigling hafnarinnar breyst og samþykkt hefur verið að leggja af leiðarmerki sem áður vísaði sjófarendum inn til hafnar.

Þetta kom fram á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar 12. nóvember. Þar voru lögð fram verkstöðuyfirlit og verkfundargerðir frá 27. október og 4. nóvember sem staðfesta að uppbyggingu garðsins sé lokið.

Innsiglingarljós taka við hlutverki leiðarmerkis

Leiðarmerki L4490 hefur fram að þessu markað innsiglinguna til Njarðvíkurhafnar. Nú afmarkast hún af innsiglingarljósum á endum varnargarðanna sem mynda hafnarmynnið.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Atvinnu- og hafnarráð, sem jafnframt er stjórn Reykjaneshafnar, telur því ekki lengur þörf á leiðarmerkinu og samþykkti að leggja það af í kjölfar breytinganna.


HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100