Vilja laða smærri skemmtiferðaskip til Reykjanesbæjar
Reykjanesbær var kynntur sem áfangastaður á árlegri ráðstefnu samtaka leiðangursskipa á norðurslóðum, AECO, í Noregi í október. Atvinnu- og hafnarráð vill að fulltrúar bæjarins og Reykjaneshafnar sæki slíkar ráðstefnur til að fylgja eftir markaðssetningu bæjarins fyrir smærri skemmtiferðaskip.
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sótti ráðstefnuna sem fór fram dagana 20.–23. október. Hún sat fund atvinnu- og hafnarráðs 12. nóvember þegar fjallað var um málið.
Vinnustofa um framtíð Reykjaness sem áfangastaðar
Á sama fundi var kynnt boð Markaðsstofu Reykjaness til vinnustofu með samstarfsaðilum 19. nóvember. Þar verður fjallað um Reykjanes sem áfangastað og hvetur ráðið áhugasama til þátttöku.
Ráðið tilnefndi jafnframt Halldóru Guðrúnu sem fulltrúa Reykjanesbæjar í markaðs- og áfangastaðaþróunarhóp Reykjaness. Hópurinn verður markaðsstofunni til ráðgjafar um áherslur og forgangsröðun verkefna og greinir sameiginleg tækifæri og áskoranir í þróun áfangastaðarins.





