Fréttir

Samþykkja tengihús fyrir vatnsveitu án grenndarkynningar
Sunnudagur 15. nóvember 2026 kl. 01:27

Samþykkja tengihús fyrir vatnsveitu án grenndarkynningar

Meirihluti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að vikið verði frá kröfu um deiliskipulagsbreytingu og grenndarkynningu vegna fyrirhugaðs tengihúss fyrir UV-lýsingarbúnað neysluvatnsveitunnar. Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum gegn tveimur.

Tengihúsið verður 5,30 metrar á lengd og 2,90 metrar á breidd og mun hýsa búnað fyrir neysluvatnsdreifikerfið. Umhverfis- og skipulagsnefnd tók jákvætt í erindi HS Veitna og staðsetningu hússins í september. Við áframhaldandi vinnslu kom hins vegar í ljós að fyrirhuguð lóð og mannvirki eru ekki sýnd á gildandi deiliskipulagi.

Nefndin taldi framkvæmdina fela í sér svo óverulegt frávik frá skipulaginu að ekki þyrfti að breyta því. Að mati hennar skerðast hagsmunir nágranna ekki hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Meirihluti bæjarstjórnar tók undir þá afgreiðslu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

A-listinn var ekki tilbúinn að samþykkja erindið án grenndarkynningar. Í bókun listans kemur jafnframt fram að heppilegra væri að staðsetja tengihúsið vestan við aðkomu að hesthúsahverfinu svo skipulagsmöguleikar í þéttbýlinu skerðist ekki.

Umhverfis- og skipulagssviði hefur verið falið að annast áframhaldandi afgreiðslu málsins og frágang lóðar- og leyfismála.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100