Fréttir

Kynna uppbyggingaráform við Hafnargötu 101 fyrir íbúum
Laugardagur 14. nóvember 2026 kl. 02:26

Kynna uppbyggingaráform við Hafnargötu 101 fyrir íbúum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að halda kynningarfund fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila um tillögu að skipulagi Hafnargötu 101. Ákvörðunin var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

Tillagan hefur verið uppfærð og byggingarmassanum skipt í þrjár byggingar í stað einnar. Þá hefur fyrirkomulagi bílastæða og staðsetningu bílskúra verið breytt.

Við kynningu skipulagslýsingar bárust meðal annars umsagnir frá Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Vegagerðin lagði áherslu á að tekið yrði mið af sjávarflóðahættu, land- og gólfhæðum og eftir atvikum varnargörðum og öðrum hafnarmannvirkjum. Heilbrigðiseftirlitið vakti athygli á nálægð uppbyggingarinnar við athafnastarfsemi og mikilvægi þess að skipulagsskilmálar tækju mið af mögulegum áhrifum hennar.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Samkvæmt fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar hefur verið brugðist við umsögnum og ábendingum við vinnslu tillögunnar og skipulagsgögn uppfærð eftir því sem við á.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að kynna sér áformin og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Að loknum kynningarfundi verður tillagan lögð aftur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu vegna auglýsingar og síðan fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100