Undirbúa ráðgjöf fyrir fjölskyldur eftir skilnað
Ráðgjafar á velferðarsviði Reykjanesbæjar hafa aflað sér fræðslu og réttinda til að veita SES-Pro ráðgjöf fyrir fjölskyldur í tengslum við skilnað eða sambúðarslit foreldra. Undirbúningur að innleiðingu þjónustunnar er hafinn.
Verkefnið var kynnt á fundi velferðarráðs 12. nóvember. SES stendur fyrir Samvinnu eftir skilnað og er stafrænt velferðarúrræði ætlað börnum, foreldrum og fagfólki.
Byggja á úrræði sem þegar er aðgengilegt á landsvísu
SES var innleitt hér á landi árið 2020 að danskri fyrirmynd. Átta sveitarfélög tóku þátt á tilraunastigi en aðgangur að fræðsluefni verkefnisins var útvíkkaður til íbúa allra sveitarfélaga árið 2021.
Nú er unnið að því að innleiða SES-Pro ráðgjöfina í þjónustu velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Ekki kemur fram í fundargerðinni hvenær hún verður í boði.





