Fréttir

Rúmlega helmingi færri fengu fjárhagsaðstoð í september
Föstudagur 13. nóvember 2026 kl. 17:08

Rúmlega helmingi færri fengu fjárhagsaðstoð í september

Alls fengu 62 einstaklingar fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ í september síðastliðnum, samanborið við 128 í sama mánuði árið áður. Viðtakendum fækkaði því um rúman helming milli ára.

Þetta kemur fram í tölulegum upplýsingum sem lagðar voru fyrir velferðarráð Reykjanesbæjar 12. nóvember. Greiddar voru um 8,3 milljónir króna í fjárhagsaðstoð í september 2026 en um 13,3 milljónir í september 2025.

Meðalgreiðsla á hvern einstakling hækkaði hins vegar úr um 104 þúsund krónum í tæplega 134 þúsund krónur. Börn á framfæri foreldra eða forráðamanna sem fengu fjárhagsaðstoð voru 20, samanborið við 54 ári áður. Ekki eru tilgreindar skýringar á fækkun viðtakenda í fundargerðinni.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Leggja til 5,6 prósenta hækkun um áramót

Á sama fundi samþykkti velferðarráð fyrir sitt leyti að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar hækki um 11.457 krónur á mánuði, eða 5,6 prósent, frá 1. janúar 2027. Tillögunni var vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Hækkunin byggist á árlegri endurskoðun grunnfjárhæðarinnar með hliðsjón af neysluvísitölu.

Þá fengu 260 einstaklingar sérstakan húsnæðisstuðning í september, samanborið við 284 í sama mánuði árið áður. Heildargreiðslur þess stuðnings jukust þó úr um 6,8 milljónum króna í tæplega 7,5 milljónir.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100